Fćrsluflokkur: Menntun og skóli
10.6.2008 | 16:36
Verksmiđjan - Menningarmiđstöđ á Hjalteyri opnar í ágúst 2008
Verksmiđjan
Menningarmiđstöđ á Hjalteyri
Neđst á Hjalteyri // 601 Akureyri // 4611450 // www.verksmidjan.blogspot.com
Hópur listamanna, ţar af 9 búsettir í Arnarneshreppi, hafa gert međ sér samkomulag um rekstur menningarviđburđa og vinnuađstöđu í gömlu Verksmiđjunni á Hjalteyri.
Undirbúningur hófst í október 2007 međ hugmyndavinnu og nú hefur veriđ gert samkomulag viđ Arnarneshrepp um afnot af gömlu Verksmiđjunni.
Markmiđiđ er ađ efla menningarviđburđi og ferđaţjónustu á svćđinu, samstarf viđ sveitarfélagiđ og skóla, og skapa vettvang fyrir listamenn á stađnum og vinna ađ nýsköpun í atvinnumálum á svćđinu. Stuđla ţannig ađ jákvćđum búsetuskilyrđum á svćđinu.
Hafinn er undirbúningur fyrir fyrstu viđburđina í Verksmiđjunni og styrkir hafa fengist frá einkaađilum, Menningarráđi Eyţings og Impru, Nýsköpunarmiđstöđ.
Ađstandendur hafa fjölbreytta ţekkingu og reynslu viđ skipulagningu menningarviđburđa, uppsetningu sýninga, námskeiđa, bókaútgáfu og heimildamyndagerđ.
Menningarhátíđ á Hjalteyri í ágústmánuđi
Sérstađa menningarhátíđarinnar á Hjalteyri í ágústmánuđi verđur ađ teljast umtalsverđ einkum međ tilliti til stađsetningar, ađstćđna og dagsskrár - óskildar ţví sem er almennt í bođi úti um land á ţessum tíma. Lögđ er sérstök áhersla á ađ velja einstaka listamenn sem geta tekiđ miđ af ađstćđum og nýtt ţćr sem möguleika. Stađarval og tímasetning ásamt vali á kunnum listamönnum ólíkra kynslóđa og mismunandi listhreyfinga, munu hjálpast ađ og draga ađ hina áhugasömu og hugsanlega kaupendur slíkrar ţjónustu í framtíđinni. Hátíđin - sem jafnframt er tilraun og undirbúningur til frekara framhalds - hćfist á mestu ferđamannahelgi ţjóđarinnar og umhverfiđ og óvanalegar ytri ađstćđur myndu spila inn í, hafa mótandi áhrif á skipulag og uppsetningu viđburđa og vekja um leiđ forvitni. Ytri skilyrđi og ástand húsakynna eru frumstćđ en spilađ verđur inn á ţađ og fegurđ ţeirra undirstrikuđ. Aukreitis en öllu ţessu samofiđ verđur bođiđ upp á listasmiđju fyrir börn og unglinga sem einnig telst afar mikilvćgur forsmekkur ađ ţví sem koma skal.
Ef svo fer ađ uppákoma ţessi leiđi til ţess ađ Hjalteyrarverksmiđjan og umhverfi hennar verđi framtíđarstađur listamanna ţá vćri sérstađa hennar í listheiminum veruleg. Hún yrđi nokkurs konar frumbýli - listin nemur land - og brúađi međ ţví bil á milli ţéttbýlis og landsbyggđar en einnig lands-byggđar og umheims. Hún yrđi hvortveggja í senn ; svćđisbundin og nćđi jafnframt til stćrri heildar, ţar sem hún myndi bćđi taka miđ af ţörfum og áhuga íbúa nćsta nágrennis en um leiđ opna gáttir til umheimsins fyrir tengsl sín og samstarf viđ erlenda ađila. Sjálft mun umhverfiđ og húsakynni Hjalteyrar-verksmiđjunnar vekja athygli, hafa áhrif á sköpun og móta starfsemina og framleiđsluţćtti (atriđi sem kann, skiljanlega, ađ vekja undrun ţeirra sem hafa haft hana of lengi fyrir augunum). Strax frá og međ menningarhátíđ yrđi unniđ ađ endurbótum međ tilliti til ţess hvernig húsakynni eru í raun, samspil náttúruafla og mannvirkja höfđ í huga og ađ leiđarljósi. Verksmiđjan yrđi eitt listaverk út af fyrir sig.
Framleiđslan og ţekkingin
Vćntingar fólks til ţessarar hátíđar og starfsemi á upphafsreit, mun fyrst og fremst verđa mćld međ tilliti til ađsóknar og viđbragđa, ekki síst í formi umfjallana og fjölmiđlaathygli. Ađstandendur munu einnig standa fyrir öflugri kynningu.
Menningarleg ţjónusta sem hér verđur til og hátíđinni er ćtlađ ađ marka upphafiđ ađ mótast fyrir ţörf ákveđins hóps listamanna til ţess ađ skapa sér sameiginlegan vettvang og sjá sér hag í ţví. Slíkt fyrirkomulag á sér fjölmargar hliđstćđur ţar sem listamennirnir hafa vinnustofur sínar í einni ţyrping og jafnframt ađstöđu til sýningahalds. Ţar geta ţeir komiđ eigin framleiđslu og annarra á framfćri. Í framtíđinni mun ţjónustan međal annars felast í ţví ađ listamennirnir geta opnađ vinnustofur sínar og sýnt og haft á bođstólum verk sín, ţeir munu bćđi í sameiningu og einstaklingsbundiđ vinna ađ metnađarfullri menningardagskrá og fjölbreyttri ţar sem ađ samankomnir mynda ţeir nokkurs konar banka tenginga og hugmynda sem allar fá ađ njóta sín. Ţeir munu bjóđa fram ţjónustu sína til skóla, til barna og unglingastarfs og standa fyrir öflugu upplýsingastreymi og kynningarstarfi.
Allir ţeir listamenn sem kallađir eru til ţátttöku á menningarhátíđ ađ ţessu sinni hafa vakiđ verđskuldađa athygli á sínu sviđi, skipuleggjendur hafa allir hlotiđ framhaldsmenntun í listum og teljast hafa sérţekkingu á sviđi lista og menningar. Ţeir hafa reynslu af skipulagningu menningarviđburđa, uppsetningu sýninga og störfum viđ kennslu og námskeiđahald.
2.-23 ágúst 2008 START
2. ágúst 2008 kl. 14:00
Opnun á myndlistarsýningunni START í Verksmiđjunni
Ţátttakendur:
Alexander Steig, Ţýskalandi
Arna Valsdóttir, Íslandi
Boekie Woekie, Hollandi
Kristján Guđmundsson, Íslandi
Magnús Pálsson, Íslandi/Bretlandi
Nicolas Moulins, Frakklandi/ Ţýskalandi
Sigga Björg Sigurđardóttir, Íslandi/Skotlandi
LISTASMIĐJUR
Listasmiđja barna og foreldra 3.ágúst 2008
Í ţessari listasmiđju er lögđ áhersla á ađ kenna ţátttakendum ađ lesa umhverfi sitt og nýta til listsköpunar. Hjalteyrin er kjörlendi uppgötvana og ćvintýra, sem ţegar grannt er skođađ getur veriđ frábćr útgangspunktur sköpunarferlis. Öll ţekkjum viđ fjársjóđsleitina í fjörum landsins og í yfirgefnum verksmiđjum en í ţessari smiđju fá börn og foreldrar innsýn í heim listarinnar međ eigin uppgötvanir ađ leiđarljósi.
Listasmiđja barna 9-10. ágúst 2008
Hér er um ađ rćđa ţrjár smiđjur međ leiđsögn ţriggja ólíkra listamanna.
Áhersla er lögđ á ađ vinna međ fjölbreytt efni og međ ólíkum ađferđum. Ţannig geta ţátttakendur valiđ sér miđil eftir áhugasviđi og getu í samráđi viđ leiđbeinendur.
Ţema smiđjunnar er framtíđ, fegurđ, samvinna. Hóparnir vinna međ ţessi ţrjú hugtök í sitt hvoru lagi og koma svo saman í lok listasmiđjunnar sem eitt verk.
GRASRÓT 2008
20. september - 12. október 2008
ferskustu rćturnar í íslenskri myndlist, í samvinnu viđ Nýlistasafniđ
Stefnt er ađ ţví ađ sýningin opni sömu helgi og Sjónlistahátíđin stendur yfir. Grasrót hefur áunniđ sér sess sem árleg sýning framsćknustu myndlistarmanna yngstu kynslóđarinnar. Nýlistasafniđ hefur haft veg og vanda af ţessum sýningum og í fyrsta skipti er stefnt ađ ţví ađ sýningin fari fram utan höfuđborgarsvćđisins, í Verksmiđjunni á Hjalteyri.
Stofnendur:
Gústav Geir Bollason
Ađalheiđur S. Eysteinsdóttir
Arna Valsdóttir
Gústav Geir Bollason
Hlynur Hallsson
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Ţórarinn Blöndal
Nicolas Moulin
Clémentine Roy
Véronique Legros
Jan Voss
Rúna Ţorkelsdóttir
Henriette van Egten
Kristján Guđmundsson
Jón Laxdal Halldórsson
Arnar Ómarsson
Lene Zachariassen
Verksmiđjan
Menningarmiđstöđ á Hjalteyri
Neđst á Hjalteyri // 601 Akureyri // 4611450 // http://www.verksmidjan.blogspot.com
9.6.2008 | 22:08
LANDSLAGSLISTAVERK OG LISTASMIĐJA FYRIR BÖRN
Tveir Norrćnir Flćkingar listakonurnar Gunn Morstoel og Helen Molin hafa lent í Eyjafirđi. Ţćr eru ađ setja upp landslagslistaverk viđ Kaupang í Eyjafjarđarsveit.
Fimmtudaginn 12. júní kl. 20:00 verđur opnun og kynning á verkum ţeirra og vinnu í Deiglunni á Akureyri. Allir velkomnir.
Föstudaginn 13. júní ćtla Gunn & Helen ađ halda listasmiđju fyrir börn á aldrinum 7-16 ára á Öldu í Eyjafjarđarsveit (24 km frá Akureyri). Smiđjan heitir Svart/hvítar öskjur og er hluti af Stađfugl Farfugl verkefninu. Námskeiđiđ kostar kr. 2000,- á mann. Norrćni menningarsjóđurinn kostar rútuferđ frá og til Akureyrar og efniskostnađ vegna námskeiđsins. Listasmiđjurnar verđa kl. 10.00 og kl. 14.00. Bókanir í síma 892 6804 hjá George Hollanders.
Ekki missa af ţessu frábćra tćkifćri!
20.5.2008 | 11:39
Guđný Ţórunn Kristmannsdóttir opnar myndlistarsýningu í Populus tremula
Laugardaginn 24. maí kl. 14:00 opnar Guđný Ţórunn Kristmannsdóttir myndlistarsýningu í Populus tremula. Ţar sýnir Guđný áđur ósýnd málverk og verk gerđ međ blandađri tćkni á pappír frá tímabilinu 1997 til ţessa dags. Ţetta er fjórđa einkasýning Guđnýjar sem einnig hefur tekiđ ţátt í samsýningum. Guđný útskrifađist af málunardeild MHÍ 1991 hún býr og starfar á Akureyri.
Einnig opiđ sunnudaginn 25. maí kl. 14:00-17:00. Ađeins ţessi eina helgi.
16.5.2008 | 10:09
Ráđstefna um menningarstefnur sveitarfélaga
Marklaus plögg eđa tćki til framfara?
- ráđstefna um menningarstefnur sveitarfélaga
Menningarstefnur sveitarfélaga marklaus plögg eđa tćki til framfara? er yfirskrift ráđstefnu sem haldin verđur í Ketilhúsinu á Akureyri ţann 22. maí nk. Á ráđstefnunni verđur fjallađ um menningarstefnur sveitarfélaga og hvernig ţćr geti stuđlađ ađ framförum og eflingu byggđar í landinu.
Frummćlendur eru Helgi Gestsson, lektor viđ Háskólann á Akureyri; Njörđur Sigurjónsson, lektor viđ Háskólann á Bifröst og Gísli Sverrir Árnason, ráđgjafi hjá R3 ráđgjöf. Helgi Gestsson mun fjalla um menningarstefnu á landsbyggđinni, sérstöđu og sóknarfćri. Njörđur Sigurjónsson fjallar um menningu og milliliđi og Gísli Sverrir Árnason um menningarstarf sem vaxtarsprota byggđanna. Auk ţeirra munu Björg Erlingsdóttir, forstöđumađur Menningarmiđstöđvar Hornafjarđar, fjalla um vinnu sveitarfélags í skjóli stefnumótunar og Ţórgnýr Dýrfjörđ, framkvćmdastjóri Akureyrarstofu, mun fjalla um hugmyndafrćđina ađ baki Akureyrarstofu. Ađ loknum framsöguerindum verđa pallborđsumrćđur.
Ráđstefnan er samstarfsverkefni Menningarráđs Eyţings, Menningarráđs Austurlands, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Bifröst og Akureyrarstofu. Ráđstefnan hefst klukkan 13 og stendur til klukkan 16.15
Ráđstefnan er öllum opin
Menningarstefnur sveitarfélaga
marklaus plögg eđa tćki til framfara?
Ráđstefna um menningarstefnur sveitar félaga haldin í Ketilhúsinu á Akureyri 22. maí kl. 13:00-16:15
Á ráđstefnunni verđur fjallađ um menningarstefnur sveitarfélaga og hvernig ţćr geta stuđlađ ađ framförum og eflingu byggđar
DAGSKRÁ
13.00 Ávarp
Sigrún Björk Jakobsdóttir, formađur Menningarráđs Eyţings
13.10 Menningarstefna á landsbyggđ, sérstađa og sóknarfćri
Helgi Gestsson, lektor viđ Háskólann á Akureyri
13.40 Menning og milliliđir
Njörđur Sigurjónsson, lektor viđ Háskólann á Bifröst og frkvstj. Bókmenntasjóđs
14.10 Menningarstarf : Vaxtarsproti byggđanna!
Gísli Sverrir Árnason, ráđgjafi hjá R3 ráđgjöf
14.40 KAFFI
15.00 Vinna í skjóli stefnumótunar
Björg Erlingsdóttir, forstöđumađur Menningarmiđstöđvar Hornafjarđar
15.20 Ađ finna fjölina?
Ţórgnýr Dýr fjörđ, framkvćmdastjóri Akureyrarstofu
15.40 Pallborđsumrćđur og samantekt
Stjórnandi: Óđinn Gunnar Óđinsson, formađur Menningarráđs Austurlands
Fundarstjóri :
Birgir Guđmundsson lektor viđ félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri
AĐGANGUR ÁN ENDURGJALDS ALLIR VELKOMNIR
Ráđstefnan er samstar fsverkefni Menningarráđs Eyţings, Menningarráđs Austurlands,
Háskólans á Bifröst, Háskólans á Akureyri og Akureyrarstofu
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2008 | 21:50
Inga Björk Harđardóttir opnar í Dalí Gallery föstudaginn 16. maí
Inga Björk Harđardóttir opnar myndlistasýninguna Brýr í DaLí Gallery föstudaginn 16. maí kl. 17-19. Inga sýnir stórar landslagsmyndir málađar međ olíulitum. Myndirnar eru hluti af útskriftaverki Ingu Bjarkar frá Myndlistaskólanum á Akureyri, en útskrift hennar fór fram í gćrkvöldi. Sýningin stendur til 31. maí
Inga Björk um verk sín:
Brýr eru táknrćnar og á lífsleiđinni förum viđ yfir margar slíkar. Frá bernsku til fullorđinsára verđa á vegi okkar hindranir og erfiđleikar sem viđ verđum ađ yfirstíga - ţćr brýr eins og hinar raunverulegu eru mislangar og misgreiđar yfirferđar.
Mér ţykja gamlar brýr sérstaklega fallegar. Bogalínur og fallegar steinhleđslur skapa skemmtilegt samspil ljóss og skugga, svo eru gömlu brýrnar smám saman ađ hverfa, ţćr molna og gróđurinn flćđir yfir.
Inga Björk Harđardóttir s.8621094
Dagrún og Lína í DaLí Gallery
http://daligallery.blogspot.com
14.5.2008 | 22:46
Guđrún Pálína opnar sýninguna Arna-litrík-Arna í galleriBOXi
galleriBOX
Laugardaginn 17. mai 2008
klukkan 13:00
opnar Guđrún Pálína sýninguna Arna litrík Arna
Guđrún Pálína Guđmundsdóttir er fćdd og búsett á Akureyri. Hún nam myndlist fyrst í Gautaborg og svo í Enschede og Maastricht í Hollandi. Hún hefur einnig BA og Diplómugráđu í almennum málvísindum og hljóđfrćđi frá Háskólanum í Gautaborg. Ţar nam hún einnig siđfrćđi, sćnsku fyrir útlendinga og skipulagningu og stjórnun menningarviđburđa. Frá Háskólanum á Akureyri hefur hún einnig numiđ uppeldis- og kennslufrćđi og hefur ţví kennsluréttindi.
Pálína rekur listagalleríiđ Gallerí+, í Brekkugötu 35 ásamt eiginmanni sínum Joris Rademaker. Hún starfar sem kennari.
Ţetta er fjórđa einkasýningin ţar sem Pálína vinnur međ stjörnukort ákveđins listamanns á Akureyri, fyrsta sýningin var í Kompunni 2004 og hét ALLA känner ALLA og var út frá stjörnukorti Ađalheiđar S. Eysteinsdóttur, 2005 á Listasumri á Akureyri var sýningin Anna bara Anna í Ketilhúsinu og var unnin útfrá stjörnukorti Önnu Richards fjöllistakonu, á Listasumri 2006 var sýningin Hlynur sterkur Hlynur á Café Karólínu og núna er ţađ stjörnukort Örnu Valsdóttur sem sýningin Arna litrík Arna byggir á, og er í Boxinu á Akureyri frá 17.maí til 7.júní . Stjörnukort Jónasar Hallgrímssonar ţjóđarskálds ( vantađi ţó nákvćman fćđingartíma ) var notađ síđasta ár á Listasumri á stórri samsýningu í Ketilhúsinu. Um myndlist sína segir Pálína:
Í listsköpun minni hef ég fyrst og fremst unniđ međ liti og málađ. Einnig bregđur fyrir texta viđ og viđ í verkum mínum. Ég hef alltaf veriđ upptekin af tungumálinu og ađ ţví ađ skrifa og hef alveg sérstakt dálćti á handskrifuđum texta. Frá árinu 1993 hef ég eingöngu málađ andlitsmyndir međ áherslu á tjáningu tilfinninga gegnum litaval og pensilskrift en ekki á ađ gera eftirlíkingu af einhverri vissri manneskju. Stjörnuspeki hefur heillađ mig sem ein leiđ til ađ skilja tilveruna svipađ og málfrćđi er ein nálgunarleiđ til skilnings á tungumálinu. Ţegar ég reyni ađ draga upp mynd af einhverjum sérstökum einstaklingi eins og Örnu Vals núna ţá passar ágćtlega ađ blanda ţessu öllu saman, litunum, myndlistinni, textabrotunum og orđum og stjörnukorti viđkomandi byggt á mínútunni sem fyrsti andardrátturinn átti sér stađ.
--
galleriBOX
Kaupvangstrćti 10
600 Akureyri
www.galleribox.blogspot.com
Jóna Hlíf Halldórsdóttir 6630545
7.5.2008 | 23:04
Sigurlín M. Grétarsdóttir - Lína opnar sýninguna "HVERFUL NÁTTÚRA" á Veggverk á Akureyri laugardaginn 10. maí
VeggVerk
Sigurlín M Grétarsdóttir - Lína opnar sýninguna "HVERFUL NÁTTÚRA" á Veggverk á Akureyri laugardaginn 10. maí.
Á Veggverk ćtlar Lína ađ mála röndótt ţrívíddarverk sem mađur getur ímyndađ sér ađ sé einskonar landslag. Ţar er hún ađ fjalla um hvađ viđ mannfólkiđ erum ađ fjarlćgast náttúruna ţar sem má túlka ţjóđfélagiđ í dag sem hálfgerđan sýndarveruleika.
,,Ég er ađ fjalla um hve hverful náttúra okkar er og hver birtingarmynd hennar er í mannskepnunni og hvađ hún er síbreytileg. Hvernig sýndarveruleiki mannsins endurspeglar náttúru okkar og ađ mađurinn hverfur meira á vit sýndarveruleikans.
Náttúran sjálf er hverful og kröftug. Viđ höfum reynt ađ beisla hana um leiđ og viđ lifum í sátt og samlyndi viđ hana. Er sýn okkar á stórkostlega náttúruna ađ hverfa á vit sýndarveruleikans? Erum viđ ennţá náttúrubörn eđa börn sýndarveruleika og eigin hverfulleika? Getum viđ virkjađ okkar innri náttúru í stađ ţess ađ fórna náttúru landsins?"
Lína útskrifađist af fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri 2007. Ţar á undan hafđi hún stundađ nám viđ Iđnskólann í Hafnarfirđi í 3 ár á hönnunarbraut og útskrifađist ţađan sem tćkniteiknari.
Lína er annar eigenda DaLí Gallery á Akureyri ásamt listakonunni Dagrúnu Matthíasdóttur.
Lína tekur á móti gestum í tilefni opnunar Veggverks á DaLí Gallery, Brekkugötu 9 kl. 17:00-20:00
www.veggverk.org
Sýningarstjóri: Jóna Hlíf Halldórsdóttir
sími. 6630545
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 13:47
VORSÝNING 2008

Ţrítugasta og fjórđa starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur međ veglegri sýningu á verkum nemenda í húsnćđi skólans. Sýnd verđa verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Ţar gefur ađ líta sýnishorn af ţví helsta sem nemendur hafa veriđ ađ fást viđ í myndlist og hönnun á ţessu skólaári.
Fjörutíu og fjórir nemendur stunduđu nám í dagdeildum skólans og af ţeim munu sautján brautskrást frá skólanum ađ ţessu sinni. Ţrír sem grafískir hönnuđir, Friđlaugur Jónsson, Karl Halldór Reynisson og Margrét Ingibjörg Lindquist. Ţrír sem myndlistarmenn, Hertha Richardt Úlfarsdóttir, Inga Björk Harđardóttir og Margeir Sigurđsson. Ellefu úr fornámsdeild, Berglind H. Helgadóttir, Bjartur Karlsson, Dagrún Íris Sigmundsdóttir, Guđrún Eysteinsdóttir, Gunnar Rúnar Guđnason, Heiđa Erlingsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Sindri Smárason, Unnur Jónsdóttir og Ţuríđur Sverrisdóttir
Einnig verđa sýnd verk eftir nemendur sem voru á barna- og unglinganámskeiđum á vorönn. Allir eru hjartanlega velkomnir í Myndlistaskólann á Akureyri um helgina. Sýningin verđur opin kl. 14:00 til 18:00 laugardag, sunnudag og mánudag, annan í hvítasunnu.
Heimasíđa skólans: www.myndak.is
VORSÝNING 2008
Myndlistaskólinn á Akureyri.
Opin helgina 10. - 12. maí kl. 14:00 - 18:00
Sýningarstađur: Kaupvangsstrćti 16
7.5.2008 | 12:53
Velkomin á sýningu Fjölmenntar
Velkomin á opnun sýningar Fjölmenntar "Fornminjar og frumbyggjalist" sem opnuđ verđur á morgun, fimmtudaginn 8. maí klukkan 17:00 í Amtsbókasafninu á Akureyri. Eyţór Ingi syngur nokkur lög viđ opnun.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2008 | 02:07
Mikiđ vesen vegna einnar mínútu
Bćnaköll geta greinilega valdiđ miklum óróa í Skipholtinu. Jafnvel ţó ađ ţau standi ađeins yfir í eina mínútu i senn á fimm tíma fresti. En ef til vill var ţađ tímasetningin sem gerđi útslagiđ. Hver vill vera vakin upp á laugardagsmorgni klukkan fimm vegna bilunar í hugbúnađi?
Ţórarinn komst heldur betur í fréttirnar í vetur međ verkiđ sitt "This is not a bomb" sem hann kom fyrir á listasafni í Toronto, viđ lítinn fögnuđ starfsfólks og lögreglu. Ţađ var umfjöllun um bćnakalliđ í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.
![]() |
Bilun í hugbúnađi kveikti á bćnakalli |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |