Sýningarlok í Listasafninu á Akureyri

asmundur
Nú eru síðustu forvöð að sjá sumarsýningu Listasafnsins á Akureyri.
Sýningin sem ber heitið Rím, samanstendur af höggmyndum Ásmundar
Sveinssonar(1893-1982) og verkum valinna samtímalistamanna, sem
kallast á og ríma saman.
 
Myndhöggvarinn Ásmundur átti sér mörg viðfangsefni í listinni; mörg þeirra
sótt í arfleifðina og þann tíðaranda sem skóp hann, en önnur í framtíðina,
tæknina og vísindin. Listamennirnir sem valdir hafa verið til að sýna með
Ásmundi hafa glímt við sömu hluti og Ásmundur en í nútímanum og í
samhengi við sinn tíma og tíðaranda. Tengsl verka Ásmundar Sveinssonar
við verk listamanna samtímans endurnýjar innihald þeirra og dýpkar
samtal þeirra við umhverfi sitt.
 
Sýningin stendur til 22. ágúst, opið er alla daga nema mánudaga frá 12-17.
Aðgangur er ókeypis í boði Akureyrarbæjar


Myndir af verkum er hægt að nálgast á þessari síðu http://www.listasafn.akureyri.is/myndasafn/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband