Guðbjörg Ringsted opnar yfirlitssýningu í sal Myndlistarfélagsins

Hús á flugi 

Myndlist í 30 ár.

Guðbjörg Ringsted opnar yfirlitssýningu á verkum sínum í sal Myndlistarfélagsins á Akureyri þann 17. ágúst  kl. 14.

Guðbjörg útskrifaðist úr grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1982  og vann við kennslu og gerð grafíkmynda og teikninga í nokkur ár. Árið 2007 sneri hún sér að málverkinu og hefur viðfangsefni Guðbjargar síðustu ár verið íslensku útsaumsmynstrin af þjóðbúningi kvenna þar sem mynstrin öðlast sitt eigið líf.

Sýningin stendur til 1. September.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband