"Ađ bjarga heiminum" í Verksmiđjunni á Hjalteyri

omslag

AĐ BJARGA HEIMINUM
Verksmiđjan á Hjalteyri/ sýning 13.06. - 21.06.  2015 / Neđst á Hjalteyri viđ Eyjafjörđ / 601 Akureyri http://www.verksmidjan.blogspot.com
Opnun laugardaginn 13 júní kl. 14:00 á Hjalteyri. Sýningin stendur til og međ 21. júní  í Verksmiđjunni (opiđ um helgar kl. 14:00 – 17:00)
Umsjón: Ađalsteinn Ţórsson

Nćstkomandi laugardag 13. júní klukkan tvö opnar í Verksmiđjunni á Hjalteyri sýningin “Ađ bjarga heiminum”.

Um er ađ rćđa sýningu sem er öllum opin til ţátttöku. Og hefur á sjöunda tug listamanna bođađ ţátttöku sína, bćđi íslenskir og erlendir. Međal annarra eiga verk á sýningunni Björg Thorsteinsdóttir, Eggert Pétursson, Guđrún Pálína Guđmundsdóttir, Guđrún Vera Hjartardóttir, Hildur Hákonardóttir, Jonna, Joris Rademaker og Sigrún Eldjárn.

Sýningin er stendur til 21. júní ţannig ađ hún spannar ađeins tvćr helgar. Seinni helgina verđur dagskrá međ fyrirlestrum, gjörningum, ljóđlist, söng og hljóđfćraslćtti. Ţar koma fram Anna Richardsdóttir, Arna Valsdóttir, Félag áhugamanna um heimspeki á Akureyri, Helgi og ljóđfćraleikararnir, Jón Laxdal Halldórsson, Kristján Pétur Sigurđsson, Sigríđur Ásný Ketilsdóttir, Tonnatak svo einhverjir séu taldir.

Hefjast hátíđahöldin klukkan tvö á laugardaginn 20. međ opnun Snorra Finnlaugssonar Sveitarstjóra Hörgárbyggđar. Dagskráin heldur svo áfram til kvölds.

Á sunnudag 21. hefjast herlegheitin međ kl 11. međ hreinsun, frćđslu, heilun og hugleiđslu, leitt af Sigríđi Ásný Sólarljós Fire Spirit.
Dagskrá helgarinnar 20. og 21. verđur nánar auglýst síđar.

Ţessi hátíđ er afrakstur hugsjónavinnu og ţeirrar trúar ađ einstaklingurinn skifti máli og ađ saman getum viđ tekist á viđ hin erfiđu vandamál sem viđ okkur blasa og skapađ framtíđar heim ţar sem lífiđ er virt framar öđru.

“Ađ bjarga heiminum” er hugarfóstur Ađalsteins Ţórssonar myndlistarmanns og ađgerđasinna.
Ađalsteinn sem er búsettur í Hollandi lauk Mastersnámi í frjálsri myndlist frá The Dutch Artinstitute ArtEZ 1998 og hefur unniđ ađ sinni myndlist síđan, ađallega í Hollandi. Í list sinni fjallar Ađalsteinn stöđugt meir um umhverfi sitt og tengsl einstaklingsins viđ umheiminn. Ţessi tengsl sem fólk tekur yfirleitt sem gefnum hlut og veltir lítiđ fyrir sér. Ţannig er hans stćrsta verk undanfarin ár veriđ safn afganga eigin neyslu sem hann nefnir “Einkasafniđ”. “Hvađ er persónulegra en ţađ sem viđ skiljum eftir okkur” spyr Ađalsteinn. Hann er virkur listamađur og sýnir reglulega, síđast međ einkasýningu hjá “Galerie de 13e maand” í Rotterdam í apríl síđastliđnum. Vefsíđa Ađalsteins er www.steiniart.com

Einnig koma ađ undirbúningi verkefnisins, Elísabet Ásgrímsdóttir listamađur, Guđrún Ţórsdóttir menningarstjórnandi og framkvćmdastjóri Listasumars á Akureyri og Ka Yee Li Listamađur og sýningarstjóri.

Opnunar tímar eru 14 – 17 miđvikudag til sunnudags. Laugardaginn 20 verđur kvöld dagskrá til 22.30 og sunnudag hefst dagskrá klukkan 11.00 fyrir hádegiđ.

Einnig er hćgt ađ fylgjast međ framgangi verkefnisins á www.adbjargaheiminum.blogspot.com

Styrktarađilar sýningarinnar eru : Eyţing, Myndlistarsjóđur og Ásprent. Bakjarlar Verksmiđjunnar eru Hörgársveit, CCPgames og Bústólpi


Bloggfćrslur 8. júní 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband