Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Joris Rademaker sýna á kirkjulistaviku

11150161_372443606288159_2502791467947799010_n

14. kirkjulistavika í Akureyrarkirkju 19.-26. apríl 2014

Hjónin Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Joris Rademaker opna sýningar í safnaðarheimili og kapellu Akureyrarkirkju sunnudaginn 19. apríl kl. 12

Guðrún Pálína skrifar um sýningu sína:

Málverkin tjá kraft og fegurð náttúrunnar sem er í stanslausri breytingu.
Vinnuferli málverkanna og efnisnotkun var í stöðugu samspili við tilfinningar og orku andartaksins.
Reynt var að fanga fegurðina sem bjó í augnablikinu, efninu og litunum.
Málverkin voru unnin í Maastricht( 1989) og í Berlín (2014).

Um Joris og verk hans:

Meginverkefni Jorisar hefur löngum verið rými, hreyfing og orkuútgeislun. Á síðustu árum hefur áherslan einnig verið á samspil lífrænna efna í þrívíðum verkum. Þrjátíu árum eftir útskrift úr listaakademíu er efnisvalið orðið ansi frjálslegt. Listaverkin kalla fram spurningar í samhengi við tilvist okkar, rými og náttúruna. Að baki hverju einasta verki liggja margvíslegar tilraunir og nákvæmar útfærslur, sem skila sér svo áfram í næstu verkefni. Verkin hafa oftast táknrænt gildi sem tengist mannlegu eðli.

Sýningarnar verða opnar á meðan Kirkjulistaviku stendur frá kl. 10-17. Sýningarnar verða svo áfram opnar til 29. maí nk.

https://www.facebook.com/events/1629050077328421

11062415_372443776288142_7946173453337306880_o


Jónborg Sigurðardóttir - Jonna, sýnir í Mjólkurbúðinni

11024606_10206746648651781_5614460750109418282_n

JÓNBORG-ELDBORG                       

Laugardaginn 18. apríl kl. 14 opnar Jónborg Sigurðardóttir - Jonna, málverkasýningu í Mjólkurbúðinni á Akureyri.
         

Að þessu sinni tjáir Jonna kraft eldsins og lífsorkunnar í eigin tilfinningum í málverkum sem hún vinnur með akríl á striga.


Jónborg (Jonna) er fædd 1966 og útskrifaðist úr málunardeild Myndlistarskólans á Akureyri vorið 1995 og lærði fatahönnun í Danmörku og útskrifaðist þaðan um vetur 2011. Jonna hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar.   

Sýningin JÓNBORG-ELDBORG stendur til 26. apríl og er opið laugardaga og sunnudaga frá kl.14-17 og allir velkomnir..

Mjólkurbúðin Listagili s.8957173

https://www.facebook.com/events/1620230154857396


Bloggfærslur 15. apríl 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband