Helga Sigríður Valdemarsdóttir opnar sýningu í Mjólkurbúðinni

untitled

Helga Sigríður Valdemarsdóttir opnar einkasýninguna Shakti í Mjólkurbúðinni Listagili á laugardaginn 21.febrúar kl. 14.

Helga Sigríður um sýninguna:

 Orðið shakti vísar til frumsköpunarorku alheimsins. Orðið kemur úr
 Sanskrít og er dregið af orðinu shak sem þýðir " að geta". Sanskrít er
 ævaforn helg indversk mállýska. Shakti er lýst sem guðlegum
 sköpunarkrafti. Þegar shakti persónugerist birtist orkan sem hin guðlega
 móðir sem hefur mátt til að koma jafnvægi á allt sem er. Shakti er að
 baki allri hreyfingu og umbreytingu í alheiminum. Án shakti væri allt
 stopp. Shakti gerir lífi fært að koma inn í þennan heim og er að baki
 öllu sem blómstrar á jörðu.

Myndlistasýningin Shakti stendur til 1.mars og er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Allir velkomnir



Helga Sigríður Valdemarsdóttir helgasigridur@internet.is
Mjólkurbúðin s. 8957173
https://www.facebook.com/groups/289504904444621


Endalaus innblástur, Margeir Dire með Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi

large_10174840_10152179041481394_2979620839300697106_n

Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 17 heldur myndlistarmaðurinn Margeir Dire fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Endalaus innblástur.  Á fyrirlestrinum veltir Margeir fyrir sér þeirri áráttu sinni að búa eitthvað til úr öllu því sem hann hefur upplifað. Í kjölfarið fer hann yfir sköpun sína í gegnum tíðina og ástæður hennar.

Margeir Dire nam í Myndlistaskólanum á Akureyri, Lahti Institude of Fine Arts í Finnlandi og Instituto Europeo di Design í Barcelona. Hann er þekktur fyrir myndsköpun í mismunandi miðla svo sem vegglistaverk, strigamálverk, teikningar, video, tónlist, hönnun og listræna stjórnun. Margeir hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í allskyns samsýningum og samstarfsverkefnum. 

Þetta er fimmti Þriðjudagsfyrirlestur ársins og sem fyrr fara þeir fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Guðmundur Heiðar Frímannsson, Elísabet Ásgrímsdóttir, Katrín Erna Gunnarsdóttir, María Rut Dýrfjörð, Jón Páll Eyjólfsson og Hildur Friðriksdóttir.

http://www.listak.is

https://www.facebook.com/listasafnid.akureyri

https://twitter.com/AkureyriArt

http://instagram.com/listak.is

https://www.facebook.com/events/414270212068620


Bloggfærslur 16. febrúar 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband