Edda Þórey Kristfinnsdóttir opnar sýningu í DaLí Gallery

IMG_4340

Edda Þórey Kristfinnsdóttir opnar myndlistasýninguna Vistaskipti í DaLí
Gallery á Akureyri, laugardaginn 15. Ágúst kl. 15-17.
Sýning Eddu Þóreyjar Vistaskipti fjallar um hið eilífa ferðalag okkar
mannfólksins, vist á ólíkum stöðum og mismunandi áhrif umhverfis þeirra og fl.
Edda Þórey lærði hönnun í Iðnskólanum í Hafnarfirði, stundaði myndlistanám
í Myndlistaskóla Reykjavíkur, Myndlista og Handíðaskóla íslands og
útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2004. Edda Þórey er með
vinnustofu að Korpúlfsstöðum, er félagi í SÍM - Sambandi íslenskra
myndlistamanna, Gilfélaginu á Akureyri og í Myndstef.


Edda Þórey Kristfinnsdóttir um Vistaskipti:


Mitt í hamingjunni
Blikka viðvörunarljós
Óreiða, skelfing , hrun
Gulir, rauðir, grænir, bláir
Englar himins gráta

Mitt í hamingjunni


Vistaskipti er uppspretta verka minna.   Við mannfólkið erum á eilífu
ferðalagi.  Hús úr húsi, sveit úr sveit, borg úr borg, land úr landi, úr
einni vist í aðra.   Vistin getur verið frá því að vera góð til þess að
vera nöturleg.   Við ráðum ekki alltaf för.      Umhverfi,  innlendar og
erlendar fréttir hafa áhrif á mig, móta hugsanir mínar og  halda mér við
gerð verkanna.

Sýning Eddu Þóreyjar í DaLí Gallery stendur fram yfir Akureyrarvöku,
menningarvöku Akureyrarbæjar þann 29. Ágúst. DaLí gallery er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og á Akureyrarvöku kl.14-17 og 20-00.
Allir velkomnir
www.daligallery.blogspot.com


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband