Félgasfundur SÍM í samstarfi við Listasafnið á Akureyri

510Ketilhus-1-666x350
 
Fimmtudaginn 25. janúar, kl. 17:00 til 18:00, verður haldinn félagsfundur SÍM í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.
 
Fundurinn verður haldinn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, Kaupvangsstræti 8, 600 Akureyri.
 
Dagskrá fundar:

/// Verklagsreglur Listasafns Reykjavíkur

Þann 12. október 2017 samþykkti Borgarráð Reykjavíkur nýjar verklagsreglur Listasafns Reykjavíkur og samþykkti viðbótarframlag til safnsins upp á 8,5 milljónir króna. Greiðslur til listamanna fyrir sýningar árið 2018 eru 12,5 milljónir króna. Viðaukinn sem fylgir Verklagsreglunum verður endurskoðaður á hverju ári í samræmi við breyttar forsendur,  t.d. hækkun starfslauna listamanna.

Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, kynnir verklagsreglur Listasafns Reykjavíkur.

/// Drög að verklagsreglum Listasafnsins á Akureyri.

Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, kynnir drög að verklagsreglum fyrir Listasafnið á Akureyri.

/// Kynning á BHM – Bandalagi Háskólamanna 

Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, fer yfir það helsta sem felst í því að vera innan vébanda BHM.

/// Önnur mál

Félagsmönnum og öðrum gestum gefst tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri til stjórnar SÍM, ræða hagsmunamál sín og spyrja spurninga.

Kaffi og kleinur í boði


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband