Gudrun Brückel með fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur ársins

12471750_1056504584371383_7277615585115791711_o

Þriðjudaginn 19. janúar kl. 17 heldur myndlistarmaðurinn Gudrun Brückel fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur ársins í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Moving houses, moving mountains. Þar mun Gudrun fjalla um grunnreglur við gerð klippimynda, út frá eigin verkum, en hún vinnur mestmegnis með form náttúrunnar og arkitektúr.

Gudrun Brückel er fædd árið 1954 í Leonberg, Baden-Württemberg í Þýskalandi og nam listfræði í Staatliche Akademie der Bildenden Künste í Stuttgart og listmálun í Hochschule der Künste í Berlín undir handleiðslu Max Kaminski og Bernd Koberling. Hún kenndi myndlist í Suður-Þýskalandi á árunum 1980-1985 en hefur síðan starfað sem myndlistamaður og kennari. Gudrun hefur haldið fjölmargar einkasýningar síðan 1978 og tekið þátt í samsýningum. Nánari upplýsingar um hana er að finna á heimasíðunni www.gudrunbrueckel.de.

Þetta er fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur ársins og sem fyrr fara þeir fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi á hverjum þriðjudegi kl. 17. Aðgangur er ókeypis.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistafélagsins. Á meðal annarra fyrirlesara vetrarins eru Rachel Lorna Johnstone, Árni Árnason, Anita Hirlekar, Claudia Mollzahn, Kristín Margrét Jóhannsdóttir, Klængur Gunnarsson og Freyja Reynisdóttir, Mille Guldbeck og Lisa Pacini og Christine Istad.

Dagskrá vetrarins má sjá hér að neðan:

19. janúar Gudrun Bruckel, myndlistarkona
26. janúar Rachael Lorna Johnstone, prófessor
2. febrúar Árni Árnason, innanhússarkitekt
9. febrúar Anita Hirlekar, fatahönnuður
16. febrúar Claudia Mollzahn, myndlistarkona
23. febrúar Kristín Margrét Jóhannsdóttir, aðjúnkt
1. mars Sandra Rebekka Dudziak, myndlistarkona 
8. mars Klængur Gunnarsson og Freyja Reynisdóttir, myndlistarmenn
15. mars Mille Guldbeck, myndlistarkona
22. mars Lisa Pacini og Christine Istad, myndlistarmenn

https://www.facebook.com/events/1240861719277245

http://www.listak.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband