Erna G.S. opnar sýningu í Deiglunni

Ernag-300x225

Erna G.S. opnar sýningu í Deiglunni, Listagilinu á Akureyri, 23. júlí kl 15.00, sýningin stendur til 7. ágúst.


Erna sýnir málverk, ljósmyndir og innsetningu, verk unnin 2009-2011.

Viðfangsefni sýningarinnar er andartakið,  þjóðfélagsástand og samtíminn, persónulegt líf og skynjanir. Þar sem um ákveðna endurspeglun er oft að ræða eða alls ekki og öðlast verkin við það bæði margræðni og mystík.

Erna hefur verið að vinna að tilraunum sínum með samþættingu ólíkra listmiðla og viðfangsefnis frá árinu 2004 þar sem hún vinnur út frá augnablikinu og með andartakið sem er það vinnuferli sem skapar verkin.  Þau umbreytast í vinnslunni þar sem Erna vinnur aftur og aftur með sömu verk og hugmyndir.

Erna stundaði myndlistanám við Myndlista og Handíðaskóla íslands 1985-1989, framhaldsnám við Slade School of Fine Art í London 1990-1992, auk náms í kennsluréttindum við Listaháskóla Íslands 2003-2005.

Þetta er 11 einkasýning hennar og hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér á landi og víða erlendis frá árinu 1990.

————–

Erna G.S.

http://www.simnet.is/egs62

egs62@simnet.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband