Ninna Þórarinsdóttir opnar sýningu í Boxinu, sal Myndlistarfélagsins

ninna.jpg

Ninnuundrin

Laugardaginn 9. apríl kl.14 opnar Ninna Þórarinsdóttir sýningu sína Ninnuundrin í Boxinu, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri.
Sýningin verður samansafn gamalla og nýrra verka hönnuðarins og myndskreytisins Ninnu Þórarinsdóttur. Ninnuundur er samansafn af furðuverum, ævintýraheimum og vélrænum dýrum, sýndar sem teikningar og skúlptúr.

http://www.flickr.com/photos/ninna_dance/


Ninna útskrifaðist árið 2006 frá Design Academy Einthoven sem hönnuður. Eftir útskrift hefur hún ferðast um heiminn og unnið við ýmiskonar verkefni meðal annars að skóhönnun í Guangzhou, Kína, teiknimyndagerð í Los Angeles, USA og iðnhönnun í Amsterdam, Hollandi.
Hún starfar nú á Íslandi sem myndskreytir og hönnuður.
Sýningin er opinn um helgar frá kl. 14.00- 17.00 til 16.apríl


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband