Rím í Listasafninu á Akureyri

listasafn_rim.png


Laugardaginn 3. júlí klukkan 15.00 opnar Listasafnið á Akureyri sýninguna Rím. Þar gefur að líta úrval verka Ásmunds Sveinssonar í bland við verk listamanna samtímans, sem ríma við minni Ásmundar.

Myndhöggvarinn Ásmundur var 20. aldar maður mótaður af 19. öldinni. Hann átti sér mörg viðfangsefni í listinni; mörg þeirra sótt í arfleifðina og þann tíðaranda sem skóp hann, en önnur í framtíðina, tæknina og vísindin. Listamennirnir sem valdir hafa verið til að sýna með Ásmundi hafa glímt við sömu hluti og Ásmundur en í nútímanum og í samhengi við sinn tíma og tíðaranda. Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni, auk Ásmundar Sveinssonar eru Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Eirún Sigurðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur Örn Friðriksson og Sara Riel. Sýningarstjórar eru Ólöf K. Sigurðardóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.

Tengsl verka Ásmundar Sveinssonar við verk listamanna samtímans endurnýjar innihald þeirra og dýpkar samtal þeirra við umhverfi sitt. Þótt verkin á  sýningunni séu mótuð af ólíkum tíðaranda og tæknilegum möguleikum eiga þau sér innra rím sem sækir í sameiginlegan brunn þar sem uppspretta nýrra hugmynda virðist óþrjótandi.

Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá klukkan 12.00 til 17.00. Sýningarstjórar eru þær Ólöf K. Sigurðardóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir, og er sýningin unnin í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn.

Nánari upplýsingar um safnið og sýninguna má nálgast á vef safnsins, listasafn.akureyri.is.

MYND: Verk eftir Ásmund Sveinsson, Kristínu Gunnlaugsdóttur, Eirúnu Sigurðardóttur og Finn Arnar Arnarsson eru á meðal þeirra sem líta má á sýningunni Rím, sem opnar í Listasafninu á Akureyri þann 3. júlí næstkomandi.
Mynd með leyfi Listasafns Reykjavíkur/ljósmynd Arnaldur Halldórsson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband