Ný framtíðarsýn í norrænu menningarsamstarfi

logo

Þátttakendur í lista- og menningarstarfi á Norðurlöndum munu á næstunni sjá nýjar pólitískar áherslur á þessu sviði. Ástæðan er sú að norrænu menningarmálaráðherrarnir hafa samþykkt nýja framtíðarsýn og framkvæmdaáætlun fyrir menningarsamstarf 2010-2012. Jafnframt hefst úttekt á endurskipulagi menningarsamstarfsins frá árinu 2007.

04/05 2010

Norrænu menningarmálaráðherrarnir gerðu nýlega samkomulag um nýja framtíðarsýn fyrir norrænt menningarsamstarf. Þeir urðu sammála um að leggja áherslu á fimm málaflokka næstu tvö árin.

Forgangsröðun verkefna mun fara fram í nánu samstarfi við norrænar lista- og menningarstofnanir en eftirfarandi málaflokkar verða í brennidepli:

·    Hnattvæðing
·    Börn og æskufólk
·    Menningararfur
·    Fjölbreytileiki
·    Tungumál

Áherslur menningarmálaráðherranna eru settar fram í tveimur skjölum, stefnumótunarskjali og framkvæmdaáætlun.

Framkvæmdaáætlunin er nátengd framtíðarsýninni, en er sveigjanleg og verður uppfærð árlega. Skjölin verða gefin út á prenti á sjö norrænum tungumálum og verður hægt að nálgast þau á heimasíðu ráðherranefndarinnar frá 1. júní.

Mat á endurskipulagningu menningarsamstarfsins

Jafnframt hafa menningarmálaráðherrarnir fjallað nánar um endurskipulag menningarsamstarfsins sem fór fram árið 2007.

Fyrirkomulagi norræna menningarsamstarfsins hefur verið breytt á undanförnum árum með það að markmiði að gera samstarfið opnara og sveigjanlegra. Sú þróun því halda áfram á næstu árum og verður áhersla lögð bæði á einstaka listamenn og almenn samtök.

Menningarmálaráðherrarnir hafa ákveðið að ýta úr vör mati á menningarsamstarfinu og skal því vera lokið í mars 2011.

Breytingar á forsendum menningarsamstarfsins verða gerðar samhliða þeirri framþróun og úrlausnarefnum sem koma upp á Norðurlöndum og utan þeirra.


María Jónsdóttir
Forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar
Leder Nordisk informationkontor
Netfang/e-post: mariajons@akureyri.is
hjemmeside: www.akmennt.is/nu

Norræna upplýsingaskrifstofan/Nordisk informationkontor
Kaupvangsstræti 23
600 Akureyri
Island.
Sími: 462 7000 Fax: 462 7007.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband