Fullveldið endurskoðað / Sovereignty Revisited: Opnun á laugardaginn 28.04.2018 kl. 15

31253123_1822229371132230_4374109545966862336_o

Fullveldið endurskoðað

Útisýning

28. apríl - 19. ágúst 2018

Laugardaginn 28. apríl 2108 kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi samsýningin Fullveldið endurskoðað . Um er að ræða útisýningu sem sett er upp á völdum stöðum í miðbæ Akureyrar. Alls eiga 10 ólíkir myndlistarmenn verk á sýningunni sem gerð eru sérstaklega í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands. Markmiðið er að sýna nýja hlið á stöðu fullveldisins á okkar tímum og fá áhorfendur til að velta fyrir sér hugmyndum, útfærslum og fjölbreyttum sjónarhornum því tengdu.

Listamennirnir eru: Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Gunnar Kr. Jónasson, Hrefna Harðardóttir, Jón Laxdal Halldórsson, Jónína Björg Helgadóttir, Karólína Baldvinsdóttir, Libia Castro og Ólafur Ólafsson, Rebekka Kühnis, Samúel Jóhannsson og Snorri Ásmundsson.

Á sýningartímanum verður boðið upp á leiðsögn með listamönnunum þar sem gengið verður á milli verkanna og þau rædd. Sýningin hlaut styrk úr sjóði afmælisárs fullveldis Íslands.

Sýningarstjórar: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Hlynur Hallsson.

///

Sovereignty Revisited

Outdoors in Akureyri

April 28th - August 19th 2018

The exhibition consists of works by 10 different artists, especially created on the occation of the 100 year anniversary of Iceland’s sovereignty. All the works will be exhibited at selected outdoor locations in the center of Akureyri. The aim is to shed a new light on the status of Iceland’s sovereignty in our times, and offer the viewers an opportunity to ponder on ideas, implementation and different perspectives regarding Iceland’s sovereignty.

Participating artists: Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Gunnar Kr. Jónasson, Hrefna Harðardóttir, Jón Laxdal Halldórsson, Jónína Björg Helgadóttir, Karólína Baldvinsdóttir, Libia Castro og Ólafur Ólafsson, Rebekka Kühnis, Samúel Jóhannsson and Snorri Ásmundsson.

Guided tours with the artists will be offered during the exhibition period. The exhibition is partly funded with a grant from the 100 Years of Sovereignty Fund.

Curators: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir and Hlynur Hallsson.

listak.is

https://www.facebook.com/events/222025228545168

 


Bloggfærslur 24. apríl 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband