Julia DePinto sýnir í Deiglunni

25358562_751534495029941_7640807823028002072_o

Disembodied Sketch

Julia DePinto sýnir í Deiglunni

Verið velkomin á opnun Disembodied Sketch, sýningu gestalistamanns Gilfélagsins Julia DePinto í Deiglunni föstudaginn 22. desember kl. 17 – 20. Einnig opið laugardaginn 23. desember kl. 14 – 17. Léttar veitingar í boði og listamaðurinn verður á staðnum.

Á sýningunni, Disembodied Sketch, kannar myndlistarmaðurinn Julia DePinto hvernig kyngervi og kynverund hennar skarast við þverfaglega stúdíóvinnu og miðlanotkun. Disembodied, “að svipta líkamlegum veruleika” og sketch eða skissa, “frumrannsókn, gróf teikning af ólokinni hugmynd”. Sýndar verða teikningar og ljósmyndir af óhlutbundnum uppbyggingum af líkama listamannsins, unnið í margvísleg efni, þ.á.m. grafítteikningar, sprey, prentverk og stafræna ljósmyndun. Sjálfsmyndirnar hjálpa DePinto að finna samhengi á milli einstakrar og sameiginlegrar reynslu af félagslegu óréttlæti og pólitískum atburðum í Bandaríkjunum. Myndræna lagskiptingin vísar í verk þeirra myndlistarmanna sem hafa notað líkama sinn sem miðil til að bjóða eignun líkama og kynverund kvenna byrgin með því að nýta sér afbyggingu.

Um listamanninn:

Julia DePinto er bandarískur myndlistarmaður og prófessor í Háskólanum við Dayton. Hún lauk MFA í Studio Myndlist við Háskólann í Connecticut og hlaut BFA í grafíkprentun við Wright State Háskólann. Þverfagleg vinna hennar kannar samtal sjálfsmyndar nútímans með því að sameina hefðbundnar og tilraunakenndar aðferðir til prentunar og ljósmyndunar með tölvutækni og hönnun.

Hún notar tilfinningaríkar sjálfsmyndir sem leið til að finna samhengi félagslegra og pólitískra hlutverka kvenna í Bandaríkjunum. Verk DePinto hafa verið sýnd víða um heim, á bæði einka- og hópsýningum, þar á meðal Douro Museum,  Czong Institute for Contemporary Art, Boston University, og Los Angeles Center for Digital Art. Verk hennar hafa einnig verið birt í tímaritunum Art New England Online, Fresh Paint og Creativ Paper ásamt því að vera hluti af söfnum víðsvegar í Bandaríkjunum. Julia DePinto er gestalistamaður Gilfélagsins í desembermánuði.

 

You are invited to the opening of Disembodied Sketch by artist in residence Julia DePInto in Deiglan on Friday 22nd December at 5 – 8pm. Also open on Saturday 23rd December 2 – 5pm.

In the exhibition, Disembodied Sketch, artist Julia DePinto explores ways in which her gender and sexuality intersect with her interdisciplinary studio practice and use of materiality. Disembodied, meaning “to divest in a bodily reality,” and sketch something that is a “preliminary study, a rough drawing or an idea that isn’t finished.” Drawings and photographs portray compositions of the artist’s abstracted body through an exploration of different materials, including drawings with graphite and spray paint to prints and digital photographs. The self-portraits are used to help DePinto contextualize individual and collective experiences of social injustices and political happenings in the United States. The layering of imagery is a paradigm for the unfolding and deconstructing work of artists who have used their bodies as a confrontational medium to release frustrations involving the ownership of discussion about female sexuality.

Biography:

Julia DePinto is an American contemporary artist and Professor at the University of Dayton. She completed her MFA in Studio Arts at the University of Connecticut and received a BFA in Printmaking from Wright State University. Her interdisciplinary studio practice explores the discourse of contemporary self-portraiture by combining traditional and experimental approaches to printmaking and photography with the tools of smart technology and design. Highly emotive self-portraits are used as a conduit for contextualizing social and political structures placed on women in the United States. DePinto’s work has been shown internationally in solo and group exhibitions, including the Douro Museum, Czong Institute for Contemporary Art, Boston University, and the Los Angeles Center for Digital Art. Her work has been featured in Art New England Online, Fresh Paint and Creativ Paper magazines, and is also held in collections nation-wide. DePinto is currently a resident artist at the Gilfelag institution in Akureyri, Iceland.

https://www.facebook.com/events/917977448377301


Fjölskylduleiðsögn í Listasafninu

25152025_1684807768207725_2030252167418442041_n

Laugardaginn 16. desember kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur, Stúlka með hjól. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listakonunnar.

Verið velkomin.
Aðgangur er ókeypis.

listak.is


Amanda Marsh sýnir í Deiglunni

23509373_10155891552799596_5395914490095322266_o

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Styrkleiki í Deiglunni, föstudaginn 15. desember kl. 17. Þar sýnir hin ástralska Amanda Marsh ný olíumálverk unnin á NES vinnustofunum á Skagaströnd.

Sýningin er opin kl. 14 - 17 föstudaginn 15. des. til sunnudagsins 17. des.

Styrkleiki is an attempt at recording pre-reflective phenomenal experience of momentary awe, knowing all the while, that such attempts are doomed to failure. No event experienced in real time can be adequately passed on to another who can experience it in the exact same way. In a way, the viewer’s own pre-reflective experience is key to the process. Do I as artist, recognise in their responses, something of my own? How ‘well’ have I failed at generating in others, a response akin to my own? Is there a universality in the ‘me-ness’ of experiences of place and moment?
this year of experiencing successive waves of awe and wonder has I believe, been the key to my own transformation and perception of time slowing down, of ditching my ‘time deficit’. It is born out by research done by academics in psychology and neurophilosophy. 

https://www.facebook.com/events/1746060982356756


Sýning á verkum Louisu Matthíasdóttur opnuð í Listasafninu á Akureyri

24775027_1676974642324371_576804598007829682_n

Laugardaginn 9. desember kl. 15 verður opnuð sýning á verkum Louisu Matthíasdóttur, Stúlka með hjól, í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi.

Louisa Matthíasdóttir (1917-2000) var einn af framsæknustu listamönnum sinnar kynslóðar. Heilir og skýrir myndfletir og tærir og einfaldir litir einkenna verk hennar. Louisa stundaði nám í Evrópu og Bandaríkjunum og var búsett í New York frá árinu 1942. Hún hélt þó sambandi við Ísland og í verkum hennar má glöggt sjá áhrif íslensks landslags og birtu. Louisa málaði einnig uppstillingar, samferðafólk og sjálfsmyndir sem sjá má á þessari sýningu.

Stúlka með hjól er byggð á sýningunni Kyrrð sem Listasafn Reykjavíkur setti upp á Kjarvalsstöðum í apríl síðastliðnum. Með henni er framhaldið röð sýninga á verkum merkra íslenskra myndlistarkvenna í Listasafninu á Akureyri en áður hafa verið settar upp yfirlitssýningar á verkum Elísabetar Geirmundsdóttur og Nínu Tryggvadóttur.

Fjölskylduleiðsögn verður um sýninguna með Heiðu Björk Vilhjálmsdóttur, fræðslufulltrúa, laugardagana 16. desember og 20. janúar kl. 11-12. Þriðjudaginn 23. janúar kl. 17-17.40 heldur Jón Proppé Þriðjudagsfyrirlestur um Louisu Matthíasdóttur.

Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.

Meðfylgjandi mynd tók Einar Falur af Louisu árið 1992 á vinnustofu hennar í New York.

https://www.facebook.com/events/123325551692810

listak.is


Gellur sem mála í Deiglunni

23674739_2046076309008234_7527904348389595766_o

AMMA - Myndlistarsýning

Gellur sem mála

Listaklúbburinn „Gellur sem mála“ heldur samsýninguna AMMA í Deiglunni á Akureyri 9.-10. des. 2017. Klúbburinn hefur starfað síðan í janúar 2016 en að honum standa ólíkir einstaklingar sem koma úr öllum áttum og styðja hvert annað í listsköpuninni.

Þema þessarar sýningar er einfaldlega AMMA þar sem hver og einn nálgast viðfangsefnið með sínum hætti. Klúbburinn kynnir sig og sýninguna á fésbókarsíðunni „Gellur sem mála í bílskúr“. Sýningin verður opin kl. 14:00-18:00 báða dagana.

„Þörfin fyrir að skapa sameinar okkur. Hópurinn sem að sýningunni stendur kynntist á námskeiði hjá Listfræðslunni veturinn 2015 – 2016 þar öndvegiskennararnir Billa og Guðmundur Ármann tóku okkur í fangið og kenndu okkur og fæddu,“ segir í tilkynningu á fésbókarsíðunni.

Meðlimir hópsins koma úr öllum áttum en sameinast í listsköpuninni:

Anna María Hjálmarsdóttir
Barbara Hjálmarsdóttir
Björgvin Kolbeinsson
Harpa Halldórsdóttir
Jóhanna Bára Þórisdóttir
Jónína Sigurðardóttir
Kristín Hólm
Líney Helgadóttir
Soffía Vagnsdóttir

https://www.facebook.com/events/297541277419904


Sushifundur í Listagilinu í hádeginu á þriðjudag 5. desember

24294018_1671591256196043_1340500573941727202_n

Það styttist í sushifundi í Listagilinu. Við hittumst næst þriðjudaginn 5. desember 2017 kl. 12-13 á RUB 23.
Allir sem hafa áhuga á Listagilinu eru velkomnir.
Það er engin formleg dagskrá en tilvalið að ræða það sem brennur á fólki og það sem er framundan eða það sem er afstaðið.

Það er sushihlaðborð fyrir 1.890 kr. en svo getur hver og einn fengið sér það sem hentar.
Við verðum eins og alltaf í salnum til vinstri þegar inn er komið.
Verið velkomin.

https://www.facebook.com/events/744961972362896


Opinn fundur: Hugmyndir um breytta notkun á Deiglunni

24131417_744760059040718_1026079070154593108_n

Opinn fundur

Hugmyndir um breytta notkun á Deiglunni

Gilfélagið í samvinnu við Listasafnið á Akureyri auglýsa opinn fund um hugmyndir um breytta notkun á Deiglunni í Listagili. Þriðjudaginn 5. desember kl. 17 í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23.

Stjórn Gilfélagsins hefur sett fram hugmynd um að auka nýtingu Deiglunnar, sem hafa verið kynntar á tveimur aðalfundum Gilfélagsins, en nú viljum við efna til opins fundar þar sem öllum sem hafa áhuga á málinu, að mæta og leggja sínar hugmyndir fram. Við hvetjum alla áhugasama um efnið og eru búsettir á Eyjafjarðarsvæðinu að mæta og taka til máls.

Á fundinum verða hugmyndir Gilfélagsins um breytingar á Deiglunni kynntar í máli og myndum.

Stjórn Gilfélagsins og Listasafnið á Akureyri.

https://www.facebook.com/events/143053489593325


Lista- og handverksmessa í Deiglunni

24172773_744412239075500_4180900301655428429_o

Hin árlega Lista- og handverksmessa Gilfélagsins fer fram í Deiglunni nú um helgina. 

Opnunartímar eru:
Föstudagur   1. desember: 19 -  22
Laugardagur 2. desember: 13 - 17

Á markaðnum kennir ýmissa grasa og upplagt er að koma og njóta lista og handverks og kannski versla eitthvað sniðugt í jólapakkann eða til að gleðja í skammdeginu.

Þátttakendur eru:
Hadda
Jóna Bergdal
Edda Aspar
Fanney Rafnsdóttir
Kristín Bjarnadóttir
Guðrún Steingrímsdóttir
Guðríður Steindórsdóttir
Sigurlín Stefánsdóttir
Agnes Arnardóttir
Hans Miniar Jónsson
Adam Óskarsson
Ragney og Ásta Bára
Hjördís Frímann
Hildur Marinósdóttir

https://www.facebook.com/events/144418426206920


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband