Hjördís Frímann með opna vinnustofu

festarkl08_019_vef

Hjördís Frímann málari býður til opinnar vinnustofu laugardaginn 19.
desember kl. 14 - 18, að Aðalstræti 16, á Akureyri, sem er næsta hús við "Gamla
spítalann". Hjördís Frímann er fædd á Akureyri 1954. Hún lauk námi frá The
School Of The Museum Of Fine Arts í Boston árið 1986 og hefur málað síðan
bæði í olíu og akrýl. Á sýningunni eru bæði eldri verk og glæný beint af
málaratrönunum og sýningin teygir sig um veggi hússins, sem jafnframt er
heimili listamannsins. Það má reikna með heimilislegri innbæjarstemningu að
Aðalstræti 16 á laugardaginn og eru allir hjartanlega velkomnir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband