Zombí opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri

zombiweb.jpg

Laugardaginn 12 des kl.17:00 verður sýning opnuð á  nokkrum
“myrkraverkum” þeirra Gústavs Geirs Bollasonar, Þórarins Blöndal, Florence Lucas, Roland Moreau
og Vincent Chhim í Verksmiðjunni á Hjalteyri og er yfirskrift sýningarinnar Zombí.

Þar í skammdeginu munu flóðgáttir ímyndunarinnar opnast og henni verða
allir vegir færir, því hér er nánar tiltekið um að ræða sýningu á og  í myrkri, þar sem
tekist er á við myrkrið og ógnir þess sem upplifun, ekki í neinum
skilgreindum listrænum tilgangi heldur mun frekar sem hríslandi
skemmtun fyrir fólk á öllum aldri.
Í tímans rás hefur goðsögnin um Zombí tekið á sig nokkrar mismunandi
myndir og merkingar. Við þekkjum öll uppvakninginn, hinn  íslenska
Þorgeirsbola sem og aðrar skuggaverur, miður viðkunnanlega náunga sem
hér voru sendir af kunnáttumönnum á milli landsfjórðunga.
 Spurst hefur til hans víða um heiminn  og ef ekki dauðum og
upprisnum, þegjandalegum, ráfandi um ankannalegur í göngulagi í erindum
eiganda síns,  þá alla veganna sem hugsana og viljalausu verkfæri í
hans höndum. Á seinni tímum hefur mest borið á honum í teiknisögum og
kvikmyndum. Þar fer hann gjarnan um stjórnlaus, í sístækkandi hópum
sísvangra og fáránlegra mannskrímsla sem hungrar helst í kjötið af
samborgurum sínum og stefnir örvita að endalokum siðmenningar og
heimsendi.
En það er  ekki síst hinn „heimspekilegi“ Zombí sem hér ræður titli,
hann mun vera lítt meðvitaður og hugsanalaus sem þó kann að haga sér
og lítur  út fyrir að vera venjuleg manneskja.


Verkin á sýningunni samanstanda  af hljóðverki, innsetningu og
teikningum,  á sýningartímabilinu verða nokkrir
viðburðir og verða þeir auglýstir síðar.  Sýningin stendur til 10. janúar
og verður opið laugardaga og sunnudaga milli kl. 16:00 og 18:00.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband