Joris Rademaker sýnir í Kaktus

20157845_1220262198096701_7253078452658314009_o

Joris Rademaker

Titill mydlistarsýningarinnar: Generalprufa

Opnun föstudagskvöldið 21. júlí kl. 19.00

Joris Rademaker - Dansandi kartöflur:
https://youtu.be/52UfWphJpnw

Sýningin er opin laugar- og sunnudag (22. og 23. júlí) kl. 14-17

Joris útskrifaðist 1996 úr myndlistarskólanum AKI í Enschede í Hollandi. Hann hefur haldið yfir 40 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.
Hann sýndi í Berín í janúar á þessu ári og verður með á samsýningu í Listasafni Reykjavíkur í október.

Joris sýnir nýja skúlptúra, frá síðustu tveimur árum. Efnisval Joris er mjög fjölbreytt. Í verkum hans notar hann annars vegar efni sem hann finnur í náttúrunni,
t.d. greinar, hvönn, bein, fjaðrir, rekavið, og hins vegar efni sem hann kaupir í verslunum t.d. tréskó, reipi, keramíkegg. o.fl.
Oft er efnið sjálft uppspretta hugmynda að listaverki.
Tengsl nútíma mannsins við náttúrulegt umhverfi er orðið ansi flókið. Það vantar oft virðingu fyrir náttúrunni í okkar neyslusamfélagi,
eins og frumbyggjarnir gerðu, notuðu bara það sem þeir þurftu, hvorki meira né minna. Þeir upplifðu sig hluta af náttúrunni en ekki aðskilin.

Í verkum Joris vakna oft spurningar hjá áhorfandanum um listfræði, heimspeki, einnig umhverfismál og samfélagsfræði.
Aðal viðfangsefni Joris er tilvist mannsins í tengslum við tíma, rými hreyfingu og efnið.

Kaktus
Hafnarstræti 73
Akureyri

https://www.facebook.com/events/463846173984732


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband