Nowhere else/Hvergi annarsstaðar í Verksmiðjunni á Hjalteyri

11214281_10153379928902829_4149068205082211161_n

Nowhere else/Hvergi annarsstaðar

Hannes Lárusson, Guido van der Werve, Hekla Dögg Jónsdóttir, Mathias Kessler, Ragnheiður Gestsdóttir, Ragnar Már Nikulásarson, Sigurður Guðjónsson, Árni Einarsson og Sirra Sigrún Sigurðardóttir,

Verksmiðjan á Hjalteyri, / 03.07 – 26.07.2015 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri
http://www.verksmidjan.blogspot.com
Opnun föstudaginn 3. júlí kl. 17:00 / Opið alla daga nema mánudaga til og með 26 júlí, kl. 14:00 – 17:00. Sýningarstjóri : Sirra Sigrún Sigurðardóttir

Nowhere else/Hvergi annarsstaðar
Er sýning og útgáfa í umsjá Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur, en í sýningunni taka þátt 8 alþjóðlegir listamenn og 1 líffræðingur. Titill sýningarinnar er vísan til einnar áhrifamestu myndar mannkynssögunnar “The Pale blue dot”, Fölblár punktur sem var tekin fyrir 25 árum (1990) af geimkönnunarfarinu Voyager 1. Þegar könnunarfarið var um það bil að yfirgefa sólkerfi okkar var myndavélum Voyager snúið aftur í átt til jarðar og myndin tekin úr 6 billjón kílómetra fjarlægð. Jörðin birtist aðeins sem örsmátt rykkorn svífandi í sólargeisla umkringt myrkri útgeimsins. Í kjölfar myndbirtingarinnar skrifaði stjarnfræðingurinn Carl Sagan einn áhrifamesta texta síðustu aldar, þar sem hann nær á kristaltæran hátt að draga fram hrollkaldan sannleikann sem myndin birtir okkur. Það er enginn annar staður, hvergi annarsstaðar en á þessum litla punkti sem við getum lifað - þarna er öll tilvera mannkyns frá upphafi til enda.

Listafólkið ávarpar með verkum sínum hugmyndina um okkur og mennskuna í óravíddum alheimsins jafnt í tíma og rúmi. Hér þjónar “Pale blue dot” - ljósmyndin hlutverki einhverskonar upphafspunkts. Hún er kjarninn sem sendir frá sér geisla sem breytir hugmyndunum um okkur sjálf. Geisla sem varpa ljósi á ólíka en samtvinnaða fleti mannlegrar tilveru í samtímanum; umhverfis- og efnahagsmál, pólitík og samfélagsmál. Frá því persónulega til hins altæka. Eiginlegar og ímyndaðar langferðir sem oftar en ekki enda þó oft í garðinum heima.

Sýningin verður opnuð föstudaginn 3. júní 2015, kl. 17:00 í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Opnunin stendur til kl. 21:00 um kvöldið

Koma listamannanna og sýningin eru styrkt af, Uppbyggingarsjóði, Myndlistarsjóði og Ásprenti. Bakhjarlar Verksmiðjunnar á Hjalteyri eru CCP­games, Bústólpi og Hörgársveit.

Nánari upplýsingar veita: Sirra Sigrún Sigurðardóttir sirra @this.is og í síma 6973373 5528055, Gústav Geir Bollason veroready@gmail.com verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og í síma: 4611450 6927450

https://www.facebook.com/events/760583694054591


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband