María Ósk Jónsdóttir sýnir í Deiglunni

MariaOskaedb3b

Laugardaginn 18. maí verður opnuð í sýningarsalnum Deiglunni, í Listagilinu á Akureyri, sýning á verkum eftir Maríu Ósk Jónsdóttur (f. 1987). Þetta er önnur einkasýning Maríu en hún útskrifaðist 2012 frá Designskolen Kolding í Danmörku. Hér sýnir hún mestmegnis fígúratíf verk en í náminu lagði María áherslu á málverk og teikningar. Nokkurs konar örsaga í léttari kantinum fylgir hverri mynd og saman skapa sagan og myndin eitt heildstætt verk.
 
Sýningin er opin til 16. júní, kl. 13-17 alla daga nema mánudaga og þriðjudaga. Sumaropnun er frá 1. júní til 31. ágúst kl. 9-17 alla daga nema mánudaga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband