Joris Rademaker sýnir í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði

joris_1194929.jpg


Á laugardaginn kemur, 23. mars opnar Joris Rademaker sýninguna Hringrás í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Joris er Hollendingur sem hefur verið búsettur á Akureyri undanfarin 20 ár. Samhliða listsköpun kennir hann við Brekkuskóla á Akureyri.
Joris er fjölhæfur listamaður með næmt auga fyrir efni og orku hlutanna. Á sýningunni í Kompunni teflir hann fram nýjum verkum unnum úr fundnum efnum og gúmmíi. Opnunin er kl. 14.00 - 17.00 og eru allir velkomnir.

Eyþing, Fjallabyggð og Fiskbúð Siglufjarðar styrkir sýninguna.

Allar nánari upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband