Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) opnar sýningu í Mjólkurbúðinni

img_1230.jpg

Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) opnar sýninguna Lollipop í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 9.mars kl.14.
 
Á sýningunni sýnir Jonna drauminn um Lollipop og örsögur Jonnu.
 
Jonna um sýninguna:
Einu sinni var stelpa með klamydíu í hjartanu. Hún leitað í óhefðbundnar lækningar og gat skrifað meinið út.
 
 
Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) er fædd 1966 og útskrifaðist úr málunardeild Myndlistarskólans á Akureyri vorið 1995 og lærði fatahönnun í Mode og Disign skolen í kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan um vetur 2011. Jonna hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar.
 
Sýningin Lollipop stendur til 17.mars og eru allir velkomnir.
Mjólkurbúðin er opin laugardaga og sunnudaga kl.14-18 á meðan sýningin prýðir salinn.

Jónborg Sigurðardóttir jonborg@simnet.is s.8488490
Mjólkurbúðin dagrunmatt@hotmail.com s.8957173
Mjólkurbúðin Listagili er á facebook - Vertu vinur

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband