Umsókn um sýningarrými í Deiglunni og samkeppni um forsíðumynd

deiglan

 

Viltu sýna í Deiglunni 2013?

Sjónlistamiðstöðin á Akureyri hefur nú auglýst sýningarými í Deiglunni laust til umsókna fyrir sýningarhald 2013. Áhugasamir skulu senda umsóknir fyrir 29. október n.k. til Sjónlistamiðstöðvarinnar, Kaupvangsstræti 12-24, 600 Akureyri, merktar “Deiglan 2013” eða á neftangið haraldur@sjonlist.is

 Umsókninni skulu fylgja eftirfarandi gögn:

 Persónulegar upplýsingar

Ferilskrá  ( ath. ef feillinn er stuttur eða um 1. sýningu að ræða þarf einungis að greina frá því)

Lýsing á fyrirhugaðri sýningu

Verk eftir viðkomanda.  ( myndir af 5-10 verkum)

Ath. Sjónlistamiðstöðin áskilur sér rétt til að velja eða hafna öllum umsóknum.


Einnig hefur Sjónlistamiðstöðin auglýst samkeppni um forsíðumynd á sumarbækling sinn fyrir 2013.  Í verðlaun eru kr. 100.000 og verða bestu myndirnar sýndar opinberlega. Frestur til að senda inn myndir er til 15. desember n.k.


Forsíðumynd:

Brot bæklings. 14,5 x 24.  Hægt er að nálgast bækling ársins í ár í Ketilhúsi

Engin takmörkun er á efni, aðferð, viðfangsefni myndar nema að hún verður að vera prenttæk.


Nánari upplýsingar á sjonlist.is og hjá Haraldi í síma 461-2609.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband