Glóbal-lókal: Tengingar listamanna við 150 ára Akureyri í Listasafninu á Akureyri

global-lokal-plakat-vef_1162043.jpg

Glóbal-lókal: Tengingar listamanna við 150 ára Akureyri verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Sjónlistamiðstöðvarinnar, næstkomandi laugardag kl. 15.

Á sýningunni takast sex listamenn, þau Arna Valsdóttir, Baldvin Ringsted, Hlynur Hallsson, Jóní Jónsdóttir, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Níels Hafstein, á við menningu og sögu Akureyrarbæjar. Þetta gera þeir í víðu samhengi – á heimsvísu – en þó í nánu samhengi fólks í bænum sjálfum. Öll eru þau listamenn sem þekktir eru fyrir næma og athyglisverða tengingu við það umhverfi sem þeir eru að vinna með. Þessvegna er mikill akkur í því að þau hafa unnið ný og spennandi verk sérstaklega fyrir sýninguna. Verkin fjalla á fjölbreyttan hátt um minningar listamannanna um lífið í Akureyri, upplifun þeirra af menningu og mannlífi í bænum (lókal), sem og hugmyndir um tengingar Akureyrar í sögulegu samhengi við umheiminn (glóbal) á bæði jákvæðan og gagnrýninn hátt. Verkin eru fjölbreytt – rýmisverk, ljósmyndaverk, vídeóverk, auk prentgripa og teikninga – og bjóða áhorfendum upp á margbrotna reynslu auk þess að tengjast á oft hugvitsamlegan máta við menningarlegt samhengi.

Sýningin stendur til 9. september.

Sýningarstjóri er Hlynur Helgason.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband