Sýningarlok og listamannsspjall hjá Örnu Valsdóttur í Flóru

image-6.jpg image-7.jpg image-8.jpg


Staðreynd 4 - … frá rótum…

Fimmtudaginn 4. ágúst lýkur sýningu Örnu G. Valsdóttur, myndlistakonu, í Flóru í Listagilinu á Akureyri með listamannsspjalli. Spjallið hefst klukkan 20, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Kvöldið er gott tækifæri fyrir þau sem eiga eftir að sjá sýninguna og einnig þau sem langar að upplifa og vita meira um verk Örnu. Í Flóru fást einnig áritaðar ljósmyndir af verki Örnu.
Arna Valsdóttir nam myndlist við MHÍ og Jan van Eyck Academie í Hollandi þaðan sem hún lauk námi 1989. Arna hefur þennan tíma unnið verk þar sem hún nýtir eigin rödd í margvísleg rýmisverk og gjörninga, bæði sem vídeóverk og innsetningar og um tíma vann hún raddteikningar fyrir útvarp.

Verkið sem hún sýnir að þessu sinni er hluti af sýningaröðinni Staðreynd og er þetta fjórða staðreyndin sem hún safnar.

Um verk sitt segir Arna:
“Heiti sýningarinnar vísar í það að ég vinn inn í tiltekið rými og reyni að hlusta vel eftir eiginleikum þess, bæði í nútíð, fortíð og kannski framtíð og þannig reyni ég að fanga ,,reynd staðarins”. Ég vinn gjarnan með eigin rödd og framkvæmi einhverskonar gjörning í rýminu sem ég tek þá upp á myndband og sýni á staðnum. Yfirleitt fæ ég snemma óljósa mynd af því sem ég vil kalla fram í hverju rými fyrir og svo reyni ég að skerpa þessa mynd, framkalla hana  og draga fram í dagsljósið. Ég næ oft ekki að sjá myndina í heild fyrr en á síðustu stundu og veit því sjaldnast hver staðreyndin er fyrr en þegar verkið er farið að vinna sjálft í rýminu.
Í Flóru varð ég strax mjög meðvituð um það að kjallarinn liggur að kirkjubrekkunni sem þýðir að bak við vegginn er endalaus mold. Verkið Staðreynd 4 - frá rótum þróaðist svo út frá þessu.
Merking hugtaksins staðreynd hefur löngum þvælst fyrir mér.
Það sem er handan staðreyndanna, yfir þeim og allt um kring vekur frekar áhuga minn en þær sjálfar og kveikir ákveðna sannleikstilfinningu.
Ég upplifi einhverskonar traust þegar ég skynja hið óræða, óáþreifanlega og afstæða en verð frekar óörugg þegar eitthvað er sett fram sem endanleg staðreynd. Sennilega trúi ég því að afstæðan sé hin eiginlega staðreynd.”

Flóra er verslun, vinnustofa og viðburðastaður Kristínar Þóru Kjartansdóttur félagsfræðings og garðyrkjukonu. Listrænn ráðunautur og kaffibarþjónn staðarins er Hlynur Hallsson, myndlistamaður. Áherslan er á nýtingu, endurnýtingu og verkmenningu.

Flóra, Listagilinu á Akureyri, Kaupvangsstræti 23, Akureyri, s. 6610168
http://floraflora.is
fésbók “flóra” https://www.facebook.com/pages/Fl%C3%B3ra/114530685244702


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband