Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi

Menningarrad_Eythings


Menningarráð Eyþings auglýsir eſtir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing . Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.


Áherslur ársins 2011


Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðurlandi eystra eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2011 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eſtirtalinna atriða:

• Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðalaga eða listgreina. Sérstaklega er horſt til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra

• Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna

• Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista

• Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu


Umsóknarfrestur er til og með 17. mars. Úthlutun fer fram í apríl. Fyrirvari er gerður um undirritun nýs menningarsamnings við ríkið fyrir þann tíma. Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2011. Úthlutað er einu sinni á árinu 2011.
Verkefnum sem hljóta styrki þarf að vera lokið fyrir árslok 2011.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is


Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is

Nánar hér: http://www.akureyri.is/frettir/nr/16279


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband