Laugardaginn 30.apríl klukkan 15:00 opnar Elísabet Brynhildardóttir sýninguna Skáldað Afl í Sal Myndlistarfélagsins.
Sýningin samanstefndur af teikningum, neyðarblysum og þrívíðum verkum sem skoða og leika sér að tilfærslum, heimfærslum og umfram allt þyngdinni.
Sýningin stendur yfir til 15. maí, opið um helgar frá 14:00 - 17:00.
www.elisabetb.com
Nánar um sýninguna:
Á sýningunni Skáldað afl lítur Elísabet til vísindanna og þeirra bragða sem þar er beitt til að skilja heiminn. Titill sýningarinnar er vísun í eitt slíkt bragð, en Skáldað afl er umorðun á eðlisfræðihugtakinu Gervikraftur (e. Ficticious force) sem er notað um þá hröðun sem á sér stað í ákveðnu kerfi sem sjálft fer hraðar og hraðar, hröðunin sjálf fer því að virka sem afl á hluti inní kerfinu og fær þannig þetta heiti. It´s a force we made up so we can do calculations segir Andrey Kopot stærðfræðingur um fyrirbærið. Hér er allri kenningarstefnu vísindanna hent útum gluggann og stærðfræðingar taka sér skáldaleyfi til að heimfæra óskyldar merkingar yfir á torræð hugtök, sem leið til að skilja heiminn.
Á þessari sýningu verður ekki farið nánar útí hröðun eða formúluna á bakvið hana heldur er þessi heimfærsla stærðfræðinganna lýsandi dæmi um ákveðna hentisemi og jafnvel einfeldningslega bjartsýni manneskjunnar, sem þó kemur henni svo langt. Þyngd og þyngdarafl eru kraftar sem erfitt er að skilgreina og eru Elísabetu hugleikin á þessari sýningu því öll erum við föll undir þyngdina, allt lekur niður, leysist upp og gefst upp fyrir þyngdinni. Í einlægri von og forvitni mannsins hefur hann sig yfir þetta náttúrulögmál á sama tíma og hann hlekkjar sig við það og jafnvel heimfærir yfir á hið óræða, andlega og þess handann snertingarinnar. Verkin leitast ekki við að útskýra eða leysa einhverja mannlega gátu, heldur að bera á borð þær þversagnir og mótsagnir sem gera manninn á endanum að manni.
//
Myndlistarfélagið er styrkt af Visit Akureyri og Akureyri Backpackers
https://www.facebook.com/events/1701059293487640
28.4.2016 | 09:14
Lefteris Yakoumakis sýnir í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði
Sunnudaginn 1. maí kl. 15.00 opnar Lefteris Yakoumakis sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Yfirskrift sýningarinnar er " Það er enginn Guð vestur af Salina ", og fjallar um ferð listamannsins frá Kansas til Kóloradó í Bandaríkjunum.
Lefteris er fæddur í Aþenu árið 1984. Hann nam málun í myndlistadeild Aristotle University í Þessalóniku árin 2003-2008. Hann hefur sýnt verk sín víða, stundað kennslu og ferðast.
Lefteris hefur dvalið hluta úr ári á Siglufirði undanfarin 3 ár og hefur bæjarfélagið og kynni af fólki verið honum innblástur .
www.left-y.com
Þar sem 1. maí er fyrsti sunnudagur í maímánuði mun Lefteris einnig sjá um " Sunnudagskaffi með skapandi fólki " sem hefst kl. 15.30 . Þar mun hann fjalla um verk sín allmennt og teiknimyndabók ( graphic novel ) sem hann er að vinna í samstarfi við Bandaríska rithöfundinn T.Carl Hardy. Bókin er innblásin af Egils sögu.
https://www.facebook.com/events/372887892881728
28.4.2016 | 09:06
Krossnálar í Kaktus
Kaktus meðlimir sýna!
Kaktus ætlar að vinda nálum sínum í kross og spinna lygalegan listavef næstkomandi laugardag. Allir velkomnir á opnun sýninarinnar Krossnálar kl. 14, 30. apríl! Kaktusar eru: Anne Balanant, Áki Sebastian Frostason, Brák Jónsdóttir, Freyja Reynisdóttir, Hekla Björt Helgadóttir og Jónína Björg Helgadóttir
Sýningin er opin laugardaginn 30. apríl frá kl. 14-17 og sunnudaginn 1. maí frá kl. 14-17.
Kaktus er styrktur af Akureyrarstofu, Uppbyggingarsjóð Norðurlands Eystra, Norðurorku og Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
https://www.facebook.com/events/232635530425364