10.2.2016 | 13:06
Baldvin Ringsted sýnir í Vestursal Listasafnsins á Akureyri
Laugardaginn 13. febrúar kl. 15 verður opnuð í Listasafninu á Akureyri, Vestursal sýning Baldvins Ringsted, Snarstefjun, annar hluti: Bárujárnsárin. Sýningin er framhald á vinnu Baldvins með tónlist og tungumál sem og tilraunir með strúktúr og afbyggingu í málverki. Mikilvægur hluti sköpunarferlisins er þegar ég set mér ramma eða einhvers konar reglur í upphafi vinnunnar, líkt og vanalega er gert í snarstefjun (e. improvisation) í jass- og blústónlist. Ferlið á sér líka sterka skírskotun í tónverkum nútímatónskálda á borð við John Cage og Steve Reich, segir Baldvin.
Baldvin Ringsted vinnur með ýmis efni og miðla; innsetningar, málverk, skúlptúra, hljóð og vídeó. Hann hefur sýnt víða um heim, bæði á samsýningum og einkasýningum. Baldvin sækir efnistök verkanna oftast að einhverju leyti í þekkingu sína og reynslu af tónlist og hljóðfæraleik. Verk hans skoða annars vegar sambandið á milli hljóðs og mynda og hins vegar á milli sögu og strúktúrs.
Sýningin Snarstefjun, annar hluti: Bárujárnsárin stendur til 25. febrúar og er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar Listasafnsins á Akureyri er alla fimmtudaga kl. 12.15-12.45. Aðgangur er ókeypis.
https://www.facebook.com/events/1232658320112938
10.2.2016 | 09:23
Zine vinnustofa í Kaktus
. . Z I N E V I N N U S T O F A . .
Verið hjartanlega velkomin á Zine vinnustofu í Kaktus.
Frábært tækifæri til að nýta sköpunargleðina og búa til eigið Zine eða skoða önnur, eyða helginni í skapandi umhverfi með góðum vinum og njóta lífsins!
Megan Auður, ungt skáld og listamaður, er komin alla leið frá Reykjavík til að eyða helginni á Akureyri að skapa saman.
Í farteski sínu hefur hún safn af Zine-um, föndur og fíneríi sem spennandi verður að skoða, og vonumst við til að sem flestir láti sjá sig til að vinna hvort í sínu lagi eða saman að einu eða fleiri Zine-um.
Pennar, skæri, litir, lím, penslar, pappír og fjöldi annarra verkfæra verða á staðnum auk skanna og prentara. En auðvitað er frábært ef gestir vilja taka eigin verkfæri meðferðis.
Samkvæmt Wikipedia er Zine:
most commonly a small circulation of self-published work of original or appropriated texts and images usually reproduced via photocopier. A popular definition includes that circulation must be 1,000 or fewer, although in practice the majority are produced in editions of fewer than 100, and profit is not the primary intent of publication.
https://www.facebook.com/events/228813090792229
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2016 | 09:19
Ellis O´Connor sýnir í Mjólkurbúðinni
Ellis O´Connor opnar sýninguna TRACING THE LAND í Mjólkurbúðinni á Akureyri, laugardaginn 13.febrúar kl. 14.
Ellis O´Connor er frá Skotlandi og hefur dvalist siðustu 5 mánuði á Íslandi, nú í Listhúsinu á Ólafsfirði og þar áður í Nesi Listamiðstöð á Skagaströnd. Ellis sýnir teikningar sem hún hefur unnið hér á landi þar sem hún vinnur með skrásetningu á eiginleikum landlagsins og fangar andrúmloftið, veðurfar og þær breytingar sem verða á umhverfinu í kjölfarið.
Ellis hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, sýnt víða og verða næstu viðkomustaðir hennar í gestavinnustofum í Noregi, Írlandi og á Svalbarða.
Hér má sjá fleiri upplýsingar um skosku listakonuna Ellis O´Connor : http://ellisoconnor.com
Sýningin Tracing the land stendur yfir aðeins þessa einu helgi og er opið laugardag og sunnudag kl. 14-17
///
Tracing the Land
Come along to the opening of Ellis O´Connor´s first solo exhibition in Iceland.
Paintings and drawings all made in response to the dark winter experienced in the North of Iceland and from the shifting landscapes of this otherworldly place.
Mjólkurbúðin
Kaupvangsstræti 12
IS-600 Akureyri
Opening times
Saturday 13th & Sunday 14th February.
2 5pm.
Drinks and refreshments will be provided.
http://www.ellisoconnor.com
https://www.facebook.com/events/1537281576600764
Menning og listir | Breytt 11.2.2016 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)