23.1.2015 | 12:05
Hola í vinnslu opnar í vestursal Listasafnsins á Akureyri
Laugardaginn 24. janúar kl. 15 verður opnuð í vestursal Listasafnsins á Akureyri sýningin Hola í vinnslu. Þar sýna nemendur úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri verk í sköpun undir leiðsögn Jónu Hlífar Halldórsdóttur, myndlistarmanns, stundakennara við Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólann á Akureyri og formanns Sambands íslenskra myndlistarmanna. Á undanförnum árum hefur Jóna Hlíf verið afar virk í sýningarhaldi bæði á einka- og samsýningum auk þess sem hún hefur aðstoðað við sýningar í tengslum við Höggmyndagarðinn og Myndhöggvarafélagið. Nemendurnir breyta vestursal Listasafnsins í eina stóra vinnustofu og vinna þar fram á síðasta dag, fimmtudaginn 29. janúar, en þá verður sýningin tilbúin og opnuð formlega. Áhugasamir gestir geta komið og átt samtal við nemendurna og jafnvel haft áhrif á ákvörðunartöku er varðar verk og uppsetningu þeirra.
Nemendurnir eru: Atli Tómasson, Elísabet Ásgrímsdóttir, Hallrún Ásgrímsdóttir, Heiðdís Hólm, Helga Bergrún Sigurbjörnsdóttir, James Cistam, Jónína Björg Helgadóttir, Karen Dögg Geirsdóttir, Margrét Kristín Karlsdóttir, Sigrún Birna Sigtryggsdóttir, Snorri Þórðarson, Steinunn Steinars og Tinna Rós Þorsteinsdóttir.
Sýningin er hluti af sýningaröð sem mun standa til 8. mars og inniheldur 8 vikulangar sýningar. Habby Osk hefur þegar sýnt og nú stendur yfir sýning Brenton Alexander Smith en aðrir sýnendur eru í tímaröð Kristján Pétur Sigurðsson, Þóra Karlsdóttir, Joris Rademaker, Lárus H. List og Arnar Ómarsson.
https://www.facebook.com/events/1533892103534972
23.1.2015 | 12:00
Þorvaldur Guðni Sævarsson sýnir í Listasalnum Braga í Rósenborg
Laugardaginn 24. janúar kl 14:00 opnum við dyr hér í Listasalnum Braga, fjórðu hæð í Rósenborg. Þorvaldur Guðni Sævarsson er fyrsti þátttakandinn okkar en hann hefur unnið að teikningum og málverkum síðustu tvær vikur.
Sjá má ýmis verk eftir Þorvald á alter ego síðu hans: Skaðvaldur
Það er tilvalið að kíkja til okkar í Braga kl 14:00 og rölta svo niður gilið á sýningu Jónu Hlífar Halldórsdóttur í Listasafnið Á Akureyri sem hefst kl 15:00.
Verið velkomin! :)
Listasalurinn Bragi, fjórðu hæð í Rósenborg
Skólastígur 2, 600 Akureyri
https://www.facebook.com/ListasalurinnBragi
https://www.facebook.com/events/769490359786345
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)