Arna Valsdóttir með þriðjudagsfyrirlestur í Ketilhúsinu

arna_valsdottir

Þriðjudaginn 7. október kl. 17 heldur Arna Valsdóttir fyrirlestur í Ketilhúsinu undir yfirskriftinni Eitt augnablik. Þar mun hún fjalla um sýningu sína Staðreynd – Local Fact sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri.
 
Á sýningunni má sjá myndbandsverk sem Arna hefur sett upp á síðustu sjö árum ásamt nýju verki sem er sérstaklega gert fyrir þessa sýningu auk verksins La frá árinu 1988 sem markar ef til vill upphafið á rýmistengdum verkum Örnu. â€¨
Arna Valsdóttir nam myndlist við MHÍ og Jan van Eyck Academie í Hollandi þaðan sem hún lauk námi árið 1989. Í Hollandi var Arna þegar farin að gera tilraunir með nýja miðla tengdum gjörningum, tónlist, ljósmyndun og myndvörpun auk hefðbundnari myndlistar. Á þessum tíma fór hún einnig að flétta eigin söngrödd inn í verk sín. Þessar aðferðir hafa verið gegnumgangandi í sköpunarferli Örnu allt til dagsins í dag.
 
Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem er annar í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi kl. 17 undir yfirskriftinni Síðdegisfyrirlestrar í Ketilhúsinu.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Á meðal fyrirlesara vetrarins eru Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri, Hlynur Helgason listfræðingur, Íris Ólöf Sigurjónsdóttir sýningarstjóri og myndlistarmennirnir Aðalsteinn Þórsson, Stefán Boulter og Guðmundur Ármann Sigurjónsson.

http://listasafn.akureyri.is


Emma Agneta sýnir í Populus tremula

10712808_10152811953188081_3983574270849212754_n

Laugardaginn 11. október 2014 kl. 14.00 opnar Emma Agneta myndlistarsýninguna Inni í myndinni í Populus tremula.

Í verkunum á sýningunni fjallar listakonan um áþreifanleika og hugmyndir sem birtast inn í myndum. Tilfinningar ásamt litagleði sem stíga dans í óróa eða kyrrð.

Sýningin er einnig opin sunnudaginn 12. október kl. 14.00-17.00.
Aðeins þessi eina helgi.

https://www.facebook.com/events/460092014131470


Bloggfærslur 5. október 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband