MIRAGE í Verksmiðjunni á Hjalteyri

IMG_5320-1-980x350

Opnun í Verksmiðjunni á Hjalteyri, 3. september 2016.

ERWIN VAN DER WERVE, EMA NIK THOMAS, ÞÓRA SÓLVEIG BERGSTEINSDÓTTIR .
Verksmiðjan á Hjalteyri, 03/09 2016 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri.http://verksmidjanhjalteyri.com einnig facebook: Verksmiðjan á Hjalteyri. Opnun laugardaginn 3. september kl. 14:00 – 17:00 / 14.30 performance Ema Nik Thomas,15.30 performance Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir/Einnig performance 11. september kl. 14:30 Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir/Opið um helgar kl. 14:00 – 17:00, en aðra daga er opið eftir samkomulagi

 
Laugardaginn 3 september kl. 14:00-17:00 opnar myndlistarsýningin «Mirage» í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Mirage er í sýningarstjórn Þóru Sólveigar Bergsteinsdóttur en ásamt henni sýna þau: Erwin van der Werve og Ema Nik Thomas. Þau vinna gjarnan með gjörninga, vídeó og málverk. Erwin veltir fyrir sér samspili hluta í rými; Hvernig þeir skilgreina það og raða sér upp eins og dansarar á sviði. Ema mun að þessu sinni vinna út frá orðinu «mirage» og upprunalegri merkingu þess. Verk hennar lýtur að nánum tengslum ímyndunar og umhverfis.Í gjörningum sínum er Þóra Sólveig að skoða gaumgæfilega stundleg tengsl við umhverfið og velur úr allt það er myndar landslag tilverunnar. Gjörningar á opnun í flutningi Ema Nik Thomas og Þóru Sólveigar Bergsteinsdóttur fara fram kl. 14:30 og 15:30. Þóra Sólveig mun einnig flytja gjörning þann 11 september kl. 14:00

 
Erwin van der Werve is intrigued by the tension that objects and elements create in a framed space; How they define the space and make a composition, like dancers on a stage do. Painting is for me a great, or perhaps the best medium to investigate this tension between objects, because a painting can look at a scene from a certain angle or viewpoint and ultimately painting is very much about composition and creating space. In a way a painting of a room or a landscape is for me like a freeze frame from a movie or a theatre stage where something is about to happen.
For this collaboration Irish artist Ema Nik Thomas is inspired by the word Mirage and its Latin roots meaning “to wonder at”. She invites us to witness and to wonder about the intimate relation between our imagination and our environment. The performance follows the simple structure of an old Irish lullaby whose intention is to soothe a child in the dark, or perhaps an adult in the face of illusion.

 
With performance Thora Solveig Bergsteinsdóttir is looking closely at relating to the environment in the moment and making choices that together create a landscape in being. It is a dialogue with self and others, space and surroundings in current moment. It is personal and universal at the same time.

 
Sumarryk/Summer Dust var sýningarverkefnin ágústmánaðar í Verksmiðjunni. 11 listamenn frá 6 löndum þróuðu ákveðið ferli með það fyrir augum að skapa stórt sameiginlegt innsetningarverk. Í Verksmiðjunni má ennþá sjá og upplifa verk þessa listafólks : teikningar á stórum skala, veggmyndir, lifandi skúlptúra, vídeóverk, hljóðupptökur, tónlist og drög að heimildamynd um síldarverksmiðjuna sem að byggir á viðtölum við hjalteyringa.

 
From August 1st-31st, eleven artists from six countries occupied the Verksmiðjan art centre, at Hjalteyri, on the Eyjafjörður fjord, northern Iceland, for a project entitled, ‘Sumarryk / Summer Dust.’ Responding to the site and to one another, the artists developed a large-scale, process-based, collaborative installation. The ‘Sumarryk / Summer Dust exhibition is still open for visit until 18th September

 
Frekari upplýsingar veitir: Gústav Geir Bollason veroready@gmail.com verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og í síma: 4611450 og 6927450.
Koma listamannanna og sýningin eru styrkt af, Uppbyggingarsjóði, Myndlistarsjóði og Ásprenti. Bakhjarl Verksmiðjunnar er Hörgársveit. Verksmiðjan á Hjalteyri er handhafi Eyrarrósarinnar 2016


A! Gjörningahátíð á Akureyri 1.-4. september 2016

14125629_1782114385379623_2825771342423966355_o

A! Gjörningahátíð verður haldin í annað sinn dagana 1.-4. september 2016 í samvinnu Listasafnsins á Akureyri, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Reykjavík Dance Festival, Menningarfélags Akureyrar / Leikfélags Akureyrar, Listhúss og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Á hátíðinni fremur myndlistar- og sviðslistafólk gjörninga og setur upp gjörningatengd verk.

A! Gjörningahátíð sló í gegn þegar hún var haldin í fyrsta skipti í september í fyrra og sóttu um 1.500 ánægðir gestir hátíðina. Þátttakendur voru vel þekktir gjörningalistamenn, leikarar og ungir, upprennandi listamenn. Vídeólistahátíðin Heim var haldin á Akureyri á sama tíma sem og „off venue“ dagskrá víðsvegar um bæinn.

Margrét Elísabet Ólafsdóttir listfræðingur sagði í pistli í Víðsjá á Rás 1 um hátíðina: "Dagskrá Gjörningahátíðarinnar A! var því ekki aðeins fjölbreytt heldur í heildina einkar vel heppnuð. Sú ákvörðun að stefna saman eldri listamönnum og upprennandi, gestum og heimamönnum virðist vera góð uppskrift að hátíð sem vonandi verður árlegur viðburður."

Gjörningarnir á A! 2016 fara fram í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, Samkomuhúsinu, Hofi, Flóru, Mjólkurbúðinni, í Listagilinu, Sal Myndlistarfélagsins, í göngugötunni og á fleiri stöðum á Akureyri og einnig í Hrísey.

Listamennirnir og hóparnir sem taka þátt að þessu sinni eru: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Aðalsteinn Þórsson, AK Litaker, Anna Richardsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Borgarasviðið, Gail Priest, Girilal Baars, Gosie Vervloessem, Ka Yee Li, Lárus H. List, Leikfélag Akureyrar, Michael Terren, Sara Björnsdóttir, Sebastian Franzén, Theatre Replacement, Thomas Watkiss og Yu Shuk Pui. 

Auk þess munu eftirtaldir listamenn koma fram á „off venue“ viðburðum: Aldís Dagmar Erlingsdóttir, Anton Logi Ólafsson, Bergþóra Einarsdóttir, Bíbí & Blaka / Fidget Feet, Egill Logi Jónasson, Freyja Eilíf, Hekla Björt Helgadóttir og Áki Sebastian Frostason, Jónborg Sigurðardóttir, Snorri Ásmundsson, Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Thora Karlsdottir og fleiri.

Samhliða A! fer fram vídeólistahátíðin Heim, en þar taka þátt Arna Valsdóttir og Klængur Gunnarsson.

http://www.listak.is

https://www.facebook.com/A.performance.festival

14086350_1782111022046626_4180165154647589271_o


Skrímslandi, #Gangandi og RÖSK í Listagilinu á Akureyrarvöku

13691122_10154512232206178_7388018903463531982_o

Listahópurinn RÖSK sýnir Skrímslandi og opnar sýninguna #Gangandi í listagilinu á Akureyrarvöku, laugardaginn 27.ágúst kl. 13

#Gangandi er sýning sem listahópurinn RÖSK setur upp í tilefni Akureyrarvöku og lok Listasumars. #Gangandi er leikur sem fólk getur tekið þátt í og eru listaverkin skór sem hægt er að spóka sig í um listagilið og fólk er hvatt til að skella mynd af sér í skónum á samskiptamiðlana facebook og Instagram og setja myllumerkið # og gangandi. Þá svífa verkin um netheima undir heitinu Gangandi og lifir þar sýningin og minningin um skemmtun í listaverkum.

Við opnun listasumars setti listahópurinn RÖSK upp sýninguna Skrímslandi í Listagilinu á Akureyri og lýkur þeirri sýningu nú á Akureyrarvöku. Þar eru 8 skrímslaskúlptúrar búnir að standa vörð um listagilið og hafa vakið verðskulda athygli þar í sumar. Skúlptúrarnr eru gerðir með það í huga að ýta undir ímyndunarafl fólks og gefa jafnvel skrímslum sem búa í hugarskotum þeirra kost á að leika lausum hala. Tilgangurinn listaverkanna er að vekja upp gleði og leik.
 
Um RÖSK:

RÖSK er samsýningarhópur fjögurra kvenna sem hafa sýnt saman undanfarin ár. Þær eru Brynhildur Kristinsdóttir, Dagrún Matthíasdóttir, Jónborg Sigurðardóttir og Thora Karlsdóttir. RÖSK hafa unnið á ólíkan hátt í myndlistinni  og beita ólíkum aðferðum og efnum  en eru samstíga í bæði hugmyndaferli og í samvinnu sinni í listum. Sýningar þeirra einkennast af því að gera gestum og gangandi kleift að máta sig við listaverkin og byggja þar upp skemmtilegt samtal listaverkanna og þátttakenda. Fer þá skemmtilegur leikur af stað sem gefur ímyndunaraflinu lausan tauminn. Oftar en ekki er birtingarmynd þess samtals í leik, söng og látbragði sem auðga sýningarnar lífi og gleði. Síðustu sýningar hafa borið lýsandi titil og hafa þær stöllur farið í orðaleik með þema hverrar sýningar, s.s.Kjólandi, Skóhattandi og Svuntandi og gefur auga leið að listaverkin eru kjólar, svuntur, skór og hattar, og í ár eru það Skrímslandi og #Gangandi.

RÖSK er á facebook


Freyja Reynisdóttir sýnir í Kaktus

14047283_925613317561592_3638215521046322317_o

ART 4 U - SÖLUSÝNING

Freyja Reynisdóttir í Kaktus, Laugardaginn 27.08.16!
/english below

Til sölu verða verk af öllum stærðum og gerðum, tilraunir, athuganir, ársgamlar franskar ,frábær listaverk og nokkrir eldri bananar svo dæmi séu tekin. Raðgreiðslur, skipti, leiga, förgun o.s.frv… Taktu bara verkið ef þig langar í það. Ef það kostar þrjátíu þúsundkarla, getur þú borgað einn svoleiðis á ári í þrjátíu ár! VÁ! SALA SALA LUSCIOUS SALA LIST LIST LIST LIST LIST SALA ART 4 U

Sýningin opnar kl. 14:00 og um kvöldið mun Vélarnar sjá um að spila tónlist.

…sjáumstums

Kaktus, Listagili, Kaupvangsstræti 10, 600 Akureyri

//
ART 4 U - SALE EXHIBITION

Freyja Reynisdóttir at Kaktus, Saturday 27.08.16

Come by and buy some art 4 u

The exhibition opens at 14:00 and in the evening DJ VÉLARNAR will play some music.

https://www.facebook.com/events/740640429420519


5 ljósmyndarar sýna á Ráðhústorgi 7

14102937_10154076964778821_4020330352547858393_o

Er hægt að segja að sköpun sé rétt eða röng?
Því verður svarað á sýningunni Rétt eða rangt? sem haldin verður á Ráðhústorgi 7 á Akureyrarvöku.

Þar sýna 5 ljósmyndarar sem eiga það sameiginlegt að hafa kynnst á vefnum ljósmyndakeppni.is fyrir hartnær 10 árum síðan. Ljósmyndararnir eru Andri Thorstensen, Daníel Starrason, Helga Kvam, Magnús Andersen og Völundur Jónsson.

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og eru þau enn iðin við að taka myndir. Á sýningunni verða sýndar myndir sem teknar hafa verið á síðustu 10 árum. Notast er við ýmsar aðferðir við myndsköpunina og eru ljósmyndurunum engin mörk sett. Útkoman er því oft skrautleg og kemur skemmtilega á óvart!

Sýningin verður haldin á Ráðhústorgi 7 á Akureyrarvöku og verður opin laugardaginn 27. ágúst og sunnudaginn 28. ágúst frá kl. 14 til kl. 17.

https://www.facebook.com/events/1028475543933041


Summer Dust / Sumarryk sýningarlok í Verksmiðjunni á Hjalteyri

14107867_1023799754406187_3901336645533085533_o

Lokateiti / finissage fjöllistaverkefnisins Sumarryks / Summer Dust í Verksmiðjunni verður haldið laugardaginn 27. ágúst frá kl. 14:00 – 23:00.
Þá munu fara fram tónleikar, teiknigjörningar, kvikmyndasýningar og hægt verður að skoða afrakstur verkefna listafólksins sem að starfað hefur í Verksmiðjunni undanfarinn mánuð.

Sumarryk / Summer Dust opnaði formlega laugardaginn 6. Ágúst. Í rúman mánuð hafa 11 listamenn frá 6 löndum starfað í Verksmiðjunni og í samvinnu, með hliðsjón af aðstæðum, þróað ákveðið ferli með það fyrir augum að skapa stórt sameiginlegt innsetningarverk. Í Verksmiðjunni má sjá og upplifa  teikningar á stórum skala, veggmyndir,  lifandi skúlptúra, vídeóverk, hljóðupptökur, tónlist og drög að heimildamynd um síldarverksmiðjuna sem að byggir á viðtölum við hjalteyringa.
Safnað hefur verið heimildum um verkefnið og viðburði því tengdu fyrir seinni tíma útgáfu.

Fríar sætaferðir frá Hofi á Akureyri til Hjalteyrar kl. 16:30. Rútan fer til baka frá Hjalteyri kl. 00:00.

The Summer Dust / Sumarryk finissage will be a day-long (2pm-11pm) concert, drawing performance, video screening and exhibition, resulting from a month-long occupation of the Verksmiðjan art centre, by eleven artists from six countries:

Anna Rún Tryggvadottir (IS, drawing,) François Morelli (CA, drawing,) Matt Shane (CA, drawing, drums,) Michaela Grill (AU, video,) Mariana Frandsen (AR, photo), Nick Kuepfer (CA, recording, guitar,) Neil Holyoak (CA/US, recording, guitar,) Hannelore Van Dijck (BE, drawing,) Christine Francis (CA, drawing, bass,) Jay Gillingham (CA, sculpture,) and Jim Holyoak (CA, drawing.)

Verksmiðjan á Hjalteyri, 06.08 – 18.09 2016 /Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri
http://verksmidjanhjalteyri.com


Koma listamannanna og sýningin eru styrkt af, Uppbyggingarsjóði, Myndlistarsjóði og Ásprenti. Bakhjarl Verksmiðjunnar er Hörgársveit.
Verksmiðjan á Hjalteyri er handhafi Eyrarrósarinnar 2016
.

https://www.facebook.com/events/1742617405985999


Gunnar Kr. sýnir í Listasafninu á Akureyri

13987564_1197431290278711_1586534140151092656_o

Á Akureyrarvöku, laugardaginn 27. ágúst kl. 15, opnar Gunnar Kr. sýninguna Formsins vegna í Listasafninu á Akureyri. Myndlist Gunnars Kr. einkennist af slagkrafti og þunga sem birtist með fjölbreyttum hætti. Hann hefur t.d. teiknað biksvartar blýsólir og logskorið stálblóm. Undanfarin misseri hefur Gunnar notað fislétt og viðkvæmt hráefni til myndgerðar – pappír – sem hann mótar, sker, litar og raðar saman uns tilætluðum áhrifum er náð. Í spennunni milli formrænnar tjáningar listamannsins annars vegar og hráefnisins sem hann notar hins vegar, er feiknarleg orka. Verk Gunnars Kr. líkjast um margt náttúrunni sjálfri; þau eru sterk, form endurtaka sig og fegurðin ríkir – þótt hún sé á stundum ógnvekjandi. Kröftug en þó viðkvæm.
Myndlistarferill Gunnars Kr. spannar þrjátíu ár og hefur hann víða komið við. Á fjölmörgum sýningum hefur hann sýnt málverk, skúlptúra, teikningar og vatnslitamyndir. Gunnar býr og starfar að list sinni á Akureyri. Sýningarstjóri er Joris Rademaker.


Í tilefni sýningarinnar kemur út sýningarskrá með textum eftir Hlyn Hallsson og Joris Rademaker og ljóðum eftir Aðalstein Svan Sigfússon.

Listasafnið verður opið til kl. 22 á opnunardegi sýningarinnar. Sýningin er opin daglega kl. 10-17 út ágúst en eftir það kl. 12-17 þriðjudaga til sunnudaga. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn um sýningar Listasafnsins er á fimmtudögum kl. 12.15-12.45.

listak.is

listak.is/is/syningar/naestu-syningar/gunnar-kr

facebook.com/events/922887221156829

 


Afmælissýning Samúels Jóhannssonar í Hofi

14054960_510172082511018_6690994129072899014_n

Í verkum sínum vinnur Samúel með akríl, vatnsliti, tússblek, járn og lakk.

Viðfangsefni Samúels er mannslíkaminn og andlitið. Að þessu sinni einbeitir hann sér fremur að túlkun andlitsins en formum hinna ýmsu líkamshluta.
Myndmál hans er sterkt, bæði hvað varðar liti og form, og svipbrigði í andlitum hans eru hörð. Stundum virðist hann vinna með óbærilegan léttleika í tilverunni í myndum sínum – hughrif sem skapa léttúð og þunga i senn, en eru ekki svo fjarri manneskjunni þegar á allt er litið.” (tilvitnun)


Myndverkasýningar Samúels eru orðnar fjölmargar, rúmlega 30 einkasýningar auk fjölda samsýninga hér heima og erlendis.

Opnun föstudaginn 26. ágúst kl. 18

 

HRAUN, ljósmyndasýning í Deiglunni

13580430_1196904093653477_6926606438229445971_o

Sverrir Karlsson áhugaljósmyndari sýnir í Deiglunni. Sverrir sýnir ljósmyndir af hrauni víðsvegar af landinu. Hann er gamall Akureyringur sem hefur tekið ljósmyndir síðan hann man eftir sér. Þetta er önnur einkasýning hans á Akureyri. Hann hefur áður sýnt á snæfellsnesi bæði tekið þátt í samsýningum og haldið einkasýningar. Sverrir hefur hlotið verðlaun í ljósmyndasamkeppnum og einnig hafa ljósmyndir eftir hann verið birtar í mörgum fjölmiðlum bæði í sjónvarpi og dagblöðum í gegnum árin. Sverrir er búsettur á Grundarfirði.

27. - 28. ágúst 2016 kl. 14-17.
 

https://www.facebook.com/events/1738376219765287


New Nordic Animal Art í Kaktus

13920413_628274537337706_2042428367193053725_o

Group exhibition by Jónína Mjöll Þormóðsdóttir, Ingrid Elsa Maria Ogenstedt and Arne Rawe

The newest phase of Nordic animal art is characterised by not having any stylised and interwoven animals into any kind of patterns. There are no decorative objects having no purpose other than to display their ornamentation. No everyday idea is elaborately and unrestrainedly decorated.

Interlace in digital modern day communication, where it occurs, becomes less regular and more complex, and if not three-dimensional human beings are usually seen in profile but twisted, exaggerated, surreal, with fragmented body parts filling every available space, creating an intense detailed energetic feel.

But there occur the so-called gripping beast which is a roaring beast with surface ornamentation in the form of interwoven animals that twist and turn as they are gripping and snapping. The absence of an union of animal forms and interlace pattern will be generally accepted as an independent style in the future.

Kaktus, Kaupvangsstræti 10 - 12, 600 Akureyri

https://www.facebook.com/events/1608084282817961

https://www.facebook.com/kaktusdidsomeart


Anja Teske opnar sýninguna "Visual Language" í Deiglunni

13907207_377168165740271_1669037904053719530_n

Anja Teske, myndlistarkona frá Þýskalandi opnar sýninguna "Visual Language" í Deiglunni n.k. laugardag 20. ágúst kl. 14:00.
Hún er gestalistamaður mánaðarins í vinnustofu Gilfélagsins.
Sýningin verður opin laugardag og sunnudag frá 14:00-17:00
Allir velkomnir!

Hér fyrir neðan lýsir hún verkefninu:
In Akureyri I have worked on my themes perspective, landscape and abstraction, and the transformations of pictures. Usually, I work on different long time projects at the same time and let them grow. In this exhibition photographs combined with texts and sketches are on display.

As I a photographer I often ask myself:

What are impacts of space and perspective for photography, how do they become visual? How is the perception of space changed by texts accompanying the photos?

How is the term „perspective“ extended, e.g. in thoughts, to create a transition from the concrete space into the intellectual, the philosophical, the political space, e.g. also with gestures?

What are the differences between the optical perspectives and the perspectives of thoughts and imagination?

What is the motivation for using space, especially: what is the size of that space resp. how big does it seem to be for us?

https://www.facebook.com/events/183866992027266/


Bergþór Morthens opnar myndlistasýninguna UMMERKI í Mjólkurbúðinni

14063853_10154308873403796_873049003536844784_n

Bergþór Morthens opnar myndlistasýninguna UMMERKI í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri, 20. ágúst kl. 14.

Bergþór Morthens um sýninguna:
„Verkin eru unnin á tvenns konar hátt þar sem tveir stílar takast á þar sem hið gróteska leggst á fínlegra og hefðbundnara undirverk og myndar þar spennu og nýja frásögn. Með eyðileggingunni skapast vísun til Chromophobiu sem er hræðslan við liti og stendur hér fyrir óttan við það að standa fyrir utan hefðbundin valdakerfi“.
 
Bergþór Morthens (f. 1979) útskrifaðist frá myndlistardeild Myndlistarskólans á Akureyri árið 2004 og lauk síðar mastersnámi í myndlist við Valand háskólann í Gautaborg í Svíþjóð árið 2015. Bergþór hefur haldið einkasýningar á Íslandi og í Svíþjóð og tekið þátt í samsýningum á Íslandi, Svíþjóð, Danmörku og Grikklandi.

Sýning Bergþórs stendur fram yfir Akureyrarvöku eða til 28.ágúst.

https://www.facebook.com/events/1172422856136790/

Bergþór Morthens
www.bergthor.com


Mjólkurbúðin í listagili er á facebook
https://www.facebook.com/groups/289504904444621/


Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og á Akureyrarvöku 27.ágúst kl. 14-18 og 20-22.


Gjörningakvöldið "Umbúðalaus" í Deiglunni, laugardaginn 13. ágúst

13920069_10153613601207096_6981265522816666198_o

Verið velkomin á gjörningakvöldið Umbúðalaus í Deiglunni, laugardaginn 13. ágúst kl. 20:30. Umbúðalaus er partur af Listasumri á Akureyri. Léttar veitingar í boði.

Umbúðalaus er hugsað sem vettvangur fyrir nýjar hugmyndir, tilraunir og mistök en líka töfrana sem skapast við nándina og augnablikið sem kemur aldrei aftur.

Listamenn sem koma fram eru:

Yu Shuk Pui Bobby 'Examination'
Freyja Reynisdóttir 'List'
Örnólfur Hlynur 'Trúir þú á áfengisdjöfulinn?'

Nánari upplýsingar veitir Heiðdís Hólm s. 8482770, heiddis.holm(hjá)gmail.com.

www.listasumar.is

https://www.facebook.com/events/273128909725249


Lilý Erla Adamsdóttir opnar sýninguna "Skógur" í Flóru

13926024_1242935152404244_2230158320649421666_o

Lilý Erla Adamsdóttir        
Skógur
13. ágúst - 13. september 2016
Opnun laugardaginn 13. ágúst kl. 14
Flóra, Hafnarstræti 90, 600 Akureyri, s. 6610168

http://floraflora.is
https://www.facebook.com/flora.akureyri

Laugardaginn 13. ágúst kl. 14-17 opnar Lilý Erla Adamsdóttir sýninguna Skógur í Flóru á Akureyri.

Sýningin er unnin út frá sænskum skógum, hugmyndum um einstaklinginn og hvernig innri heimar geta orðið til í samstarfi skynjunar og ímyndunarafls. Verkin samanstanda af tálguðum tréfígúrum úr veðruðu spreki skógarbotna Svíþjóðar og máluðum mynstrum.

Lilý útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands, diplóma í textíl frá Myndlistaskóla Reykjavíkur og er nú hálfnuð með mastersnám í listrænum textíl frá Textílháskólanum í Borås. Hún hefur fundið verkum sínum farveg í gjörningalist, ljósmyndum, vídeói og textíl svo eitthvað sé nefnt. Endurtekning er áberandi í verkum hennar og fjalla þau oft um munstrið sem skapast með hegðun okkar í daglegu lífi.

Sýningin er öllum opin á opnunartíma Flóru: mán.-lau. kl. 10-18.

Sýningin stendur til þriðjudagsins 13. september 2016.


Flóra er verslun og viðburðastaður með vinnustofum sem Kristín Þóra Kjartansdóttur félagsfræðingur rekur. Áherslan er á nýtingu, endur-nýtingu, náttúrutengsl og verkmenningu.


Anja Teske opnar einkasýningu í Mjólkurbúðinni

13708394_10153660990272231_4711458758433555522_o

Anja Teske opnar einkasýningu í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri laugardaginn 6. ágúst kl. 14. Anja Teske er gestalistamaður Gilfélagsins í ágúst og er sýning hennar einnig liður í Listasumri 2016.


„Welcome"

You are cordially invited to the opening of my exhibition. I would like to present my works on the theme „Perspectives“. These are photographies and interviews of people in Iceland and abroad, combined with landscapes and interiors. You are all welcome to the opening or at any time between to see the exhibition.

6. August – 14. August 2016
2:00 - 5:00 p.m.
Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri


I am invited by the Gilfélag association to spend the August in Akureyri. My aim is to discover the city and its people. I love the diversity of human beings and their personal stories. My recent work is about this. You are welcome to join this project. I would like to talk to you and take photographies of you or your favorite place or what you would like to show to me. I would like to meet different people from Akureyri and further. It would be fantastic if I could meet inhabitants with various professions and positions, for example artist, hairdresser, tourists-guide, chef, grandma and grandpa…, and different age, from 9-99.

http://anja-teske.de

https://www.facebook.com/events/1145776032162184


RÓT2016 í Listagilinu

13913825_1115714055144462_5576744675635339915_o

RÓT2016

6. – 20. ágúst 2016

Listagilinu, Akureyri

www.rot-project.com | rotprojectinfo@gmail.com | www.facebook.com/rotprojectnytt

Næstkomandi laugardag hefst listaverkefnið RÓT2016 í Listagilinu á Akureyri. Þetta er í þriðja sinn sem RÓT fer fram og er nú hluti af Listasumri á Akureyri. Sjö hópar listamanna hittast á 15 daga tímabili og skapa verk sem eru upphugsuð að morgni og framkvæmd og fullunnin á einum degi. Þannig skapast mikil orka og líf í Listagilinu og áhersla verður lögð á að vera úti og vera áberandi, íbúum og ferðamönnum til ánægju. Fyrir þátttakendur er verkefnið bæði spennandi og krefjandi, þeir vinna undir mikilli tímapressu sem reynir á samstarfshæfni og skapandi hugsun.

Stjórnendur verkefnisins eru ánægðir með þróun verkefnisins og hlakka til að sjá hvað gerist í ár, enda koma þátttakendur ekki inn í verkefnið með mótaðar hugmyndir heldur fæðast þær yfir morgunmatnum.

Verkefnið er í opið eftir hádegi laugardaga, þriðjudaga og fimmtudaga á tímabilinu 6. – 20. ágúst.


SUMARRYK/SUMMER DUST í Verksmiðjunni á Hjalteyri

13923853_10154345900782829_7195190653458621854_o

Opnun í Verksmiðjunni á Hjalteyri 6. ágúst 2016.
«SUMARRYK/SUMMER DUST»
Í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
HANNELORE VAN DIJCK, ANNA RÚN TRYGGVADÓTTIR, FRANÇOIS MORELLI, MICHAELA GRILL, NICK KUEPFER, MATT SHANE, CHRISTEEN FRANCIS, NEIL HOLYOAK, JIM HOLYOAK, MARIANA FRANDSEN



Verksmiðjan á Hjalteyri, 06.08 – 18.09 2016 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri
http://verksmidjanhjalteyri.com
einnig facebook: Verksmiðjan á Hjalteyri

https://www.facebook.com/events/968660849898870


Opnun laugardaginn 6. ágúst kl. 14:00 / Opið alla  daga kl. 14:00 – 17:00 6. ágúst - 18. sept. 2016

Fjöllistaverkefnið Sumarryk/Summer Dust opnar formlega laugardaginn 6. Ágúst. Í rúman mánuð munu 10 listamenn frá 6 löndum koma sér fyrir í Verksmiðjunni og í samvinnu, með hliðsjón af aðstæðum, þróa ákveðið ferli með það fyrir augum að skapa stórt sameiginlegt innsetningarverk sem að mun bera titilinn «Sumarryk». Þau vinna að teikningum á stórum skala, með vídeóvarpanir, hljóðupptökur og munu umbreyta hljómi, ljósi og yfirborði hinna risastóru rýma síldarverksmiðjunnar. Samhliða, út mánuðinn, eru áætlaðir tónleikar, kvikmyndasýningar og gjörningar allar helgar.
Safnað verður heimildum um verkefnið og viðburði því tengdu fyrir seinni tíma útgáfu. Í því samhengi langar listamennina sérstaklega til þess að bjóða til fundar við þá alla  sem að eiga minningar um síldarverksmiðjuna sem slíka, myndir eða luma á góðri sögu henni tengdri

Sem hliðarverkefni þá mun hópurinn fara til Reykjavíkur þann 18 ágúst til þess að standa fyrir gjörningi í Mengi http://www.mengi.net. Viðburðurinn verður á mótum gjörningalistar og tónleika

Viðburðir í ágúst :
6. ágúst : Sumarryk/Summer Dust opnun og listamannaspjall Matt Shane, Jim Holyoak og Michaela Grill.
18. ágúst : hliðarverkefnið Varulven, teikni/tónlistargjörningur í Mengi Reykjavík.
20. ágúst : kvikmyndakvöld í Verksmiðjunni.
27. ágúst : Summer Dust/Sumarryk finissage í Verksmiðjunni, tónlist í flutningi Nick Kuepfer, Neil Holyoak og gestatónlistarmanna:   https://holyoak.bandcamp.com/
    https://nickkuepfer.bandcamp.com/

6. August - 18. September 2016 ten artists from six countries will occupy the Verksmiðjan art centre, at Hjalteyri, on the Eyjafjörður fjord, northern Iceland, for a project entitled, 'Sumarryk / Summer Dust.'

Responding to the site and to one another, the artists will develop a large-scale, process-based, collaborative installation. The 'Sumarryk / Summer Dust' artists include Anna Rún Tryggvadottir (IS, drawing,) François Morelli (CA, drawing,) Matt Shane (CA, drawing, drums,) Michaela Grill (AU, video,) Mariana Frandsen (AR, photo), Nick Kuepfer (CA, recording, guitar,) Neil Holyoak (CA/US, recording, guitar,) Hannelore Van Dijck (BE, drawing,) Christine Francis (CA, drawing, bass,) and Jim Holyoak (CA, drawing.) â€¨â€¨Working with large-scale wall-drawing, live music, video projection, and audio/video recording, the artists will transform the acoustics, lighting, and surfaces throughout the massive concrete chambers of the former herring factory. Their work will explore ideas of performance, improvisation, collectivity and experimental documentation, seeking to find linkages, harmonies and dissonances between visual and audio artwork. They will work continually, listening, watching, describing and responding to one another’s marks and sounds. Verksmiðjan will metamorphose over August, during which time there will also be scheduled concerts, screenings and performances. Video and audio samples will be continually collected to document the month’s events, for publication after the finissage. As part of this document, the artists would like to extend a special invitation to hear from those with memories, stories and pictures of Verksmiðjan when it was a factory.

As a satellite project, the group of artists will travel to Reykjavík, to participate in a one-night performance on August 18th, at the Mengi experimental music venue. The event will be a cross between performance-art and a music concert.
Event Schedule:
Aug 6th: Summer Dust / Sumarryk vernissage and artist lectures by Matt Shane, Jim Holyoak and Michaela Grill
Aug 18th: satellite project Varulven live drawing/music performance at Mengi, in Reyjkavik..
Aug 20th: film night at Verksmiðjan.
Aug 27th: Summer Dust / Sumarryk finissage at Verksmiðjan, with concerts by Nick Kuepfer, Neil Holyoak and guests:    https://holyoak.bandcamp.com/
    https://nickkuepfer.bandcamp.com/


Frekari upplýsingar veitir: Gústav Geir Bollason veroready@gmail.com verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og í síma: 4611450 og 6927450.

Koma listamannanna og sýningin eru styrkt af, Uppbyggingarsjóði, Myndlistarsjóði og Ásprenti. Bakhjarl Verksmiðjunnar er Hörgársveit. Verksmiðjan á Hjalteyri er handhafi Eyrarrósarinnar 2016

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband